Ráðherra beið í mánuð eftir aðstoð: Seldi hlutinn

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk ekki tækniaðstoð strax.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk ekki tækniaðstoð strax. mbl.is/Karítas

Eiginmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra seldi 9,59 prósenta eignarhlut sinn í félaginu Munnbitinn ehf. í júlí síðastliðnum. Kaupverðið fyrir hlutinn var 102.113 krónur.

Þetta kemur fram í svari aðstoðarmanns forsætisráðherra við fyrirspurn mbl.is.

„Þingmenn yfirfara jafnan hagsmunaskráningar sínar að hausti ár hvert og átti forsætisráðherra frumkvæði að því að láta breyta hagsmunaskráningu sinni á vef Alþingis í byrjun október. Skráningin var loks uppfærð á vefnum 4. nóvember,“ segir í svari aðstoðarmanns Kristrúnar.

Greint var frá því á mbl.is á mánudag að félagið hefði verið fjarlægt úr hagsmunaskrá ráðherra.

Munnbitinn, sem hélt utan um rekstur Minigarðsins, óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í síðustu viku en Viðskiptablaðið fjallaði um rekstrarerfiðleika þess í júlí síðastliðnum. Þar kom fram að eigið fé rekstrarfélagsins væri neikvætt og að félagið hefði tapað um 65 milljónum króna samanlagt á síðustu tveimur árum.

Staðreyna ekki upplýsingar

Í svari skrifstofustjóra Alþingis, við fyrirspurn mbl.is, segir að ritari forsætisráðherra hafi haft samband við skrifstofu Alþingis þann 2. október síðastliðinn og óskað eftir tækniaðstoð fyrir hönd Kristrúnar, svo hún gæti uppfært hagsmunaskrá sína.

„Veittar voru leiðbeiningar sama dag. Það var svo 4. nóvember sem forsætisráðherra fær tækniaðstoð starfsmanns skrifstofu Alþingis svo hún gæti uppfært hagsmunaskráningu sína. Skráningin var yfirfarin og birt sama dag á vef Alþingis,“ segir í svari skrifstofustjóra Alþingis við fyrirspurninni.

Þar segir jafnframt að skrifstofa Alþingis hafi ekki upplýsingar um ástæður þessarar tilteknu breytingar en reglur um hagsmunaskráningu gera ekki ráð fyrir að skrifstofa Alþingis skuli endurmeta ákvörðun þingmanns. 

„Skrifstofa Alþingis les yfir skráningu þingmanns og gerir athugasemdir ef ástæða er til, t.d. ef augljós mistök eru við útfyllingu eyðublaðs. Í því felst á hinn bóginn ekki að endurmeta eða staðreyna upplýsingar sem þingmaður skráir. Það er þingmaðurinn sjálfur sem skráir hagsmuni sína og viðheldur þeirri skráningu.“

Höfðu ekki aðkomu að rekstrinum

Í svari aðstoðarmanns forsætisráðherra kemur fram að hvorki Kristrún né Einar Bergur Ingvarsson, eiginmaður hennar, hafi átt nokkra aðkomu að daglegum rekstri eða ákvörðunum um rekstur Munnbitans ehf.

„Samkvæmt reglum um hagsmunaskráningu alþingismanna ber þingmönnum ekki skylda til að skrá eignir maka en forsætisráðherra hefur kosið að halda þeim til haga í hagsmunaskráningu sinni í nafni gagnsæis,“ segir þar jafnframt.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅