Sakfelldur í sjötta sinn

Maðurinn var sviptur ökurétti ævilangt árið 2017 en hefur síðan ítrekað hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot. Ljósmynd/Colourbox

Karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að aka þrívegis sviptur ökurétti, þar af tvisvar undir áhrifum fíkniefna.

Maðurinn var sviptur ökurétti ævilangt árið 2017 en hefur síðan ítrekað hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot.

Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness 22. október. Maðurinn játaði brotin afdráttarlaust fyrir dómi og krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa.

Þrjú fíkniefni mældust í blóði

Brotin þrjú voru framin frá janúar til júlí á þessu ári. Á nýársdag stöðvaði lögregla akstur mannsins á Áshamri í Hafnarfirði. Hann var sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa fíkniefna. Í blóði hans mældust amfetamín, kókaín og metamfetamín.

Þann 4. maí stöðvaði lögregla akstur hans á Hraunholtsbraut í Garðabæ. Hann var þá einnig sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Í það sinn mældust amfetamín og metamfetamín í blóði hans.

Þriðja brotið var framið 4. júlí þegar maðurinn ók sviptur ökurétti um Álfaskeið í Hafnarfirði.

Í sjötta sinn sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn sérstaklega til sakaferils mannsins. Samkvæmt dóminum er þetta í sjötta sinn sem hann er fundinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og í fjórða sinn sem hann er fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti.

Maðurinn gekkst undir sektir og tímabundna sviptingu ökuréttar vegna fíkniefnaaksturs árin 2012 og 2016. Árið 2017 var hann dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Hann hlaut aftur dóma fyrir slík brot árin 2018 og 2023.

Þá kemur fram að hann hafi einnig hlotið dóma fyrir fjársvik, líkamsárás, frelsissviptingu og fleiri hegningarlagabrot.

Með hliðsjón af sakaferlinum taldi dómurinn tíu mánaða fangelsi hæfilega refsingu. Ævilöng svipting ökuréttar var jafnframt áréttuð og manninum gert að greiða 527.236 krónur í sakarkostnað.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅