Kokkakonur stofna félag í kvöld
Að stofnun Kokkakvenna standa, frá vinstri, Guðfinna Guðmundsdóttir, Ólöf Helga Jakobsdóttir, Katla Gunnarsdóttir og Guðrún Sveinsdóttir. Stofnfundurinn verður haldinn í Bryggjuhúsinu í kvöld klukkan 18.00. Ljósmynd/Aðsend
Stofnfundur Kokkakvenna verður haldinn í Bryggjuhúsinu í kvöld, miðvikudaginn 11. nóvember, klukkan 18.00. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir konur í matreiðslu og tengdum störfum til að hittast, miðla reynslu og efla tengslin innan stéttarinnar.
Að stofnun félagsins standa matreiðslumeistararnir Guðfinna Guðmundsdóttir, Ólöf Helga Jakobsdóttir og Guðrún Sveinsdóttir ásamt Kötlu Gunnarsdóttur, sem er sérhæfð í danskri smurbrauðsgerð.
Nemar jafnt sem reyndir kokkar
Félagsskapurinn er ætlaður konum úr ólíkum greinum matreiðslunnar, meðal annars kokkum, matreiðslumeisturum, matreiðslunemum og matráðum. Konur sem áður störfuðu við matreiðslu eru einnig velkomnar.
Hugmyndin er að hittast nokkrum sinnum á ári, heimsækja áhugaverða veitingastaði og njóta góðs matar. Samkvæmt kynningu skipuleggjenda verður áherslan á afslappaðan og skemmtilegan félagsskap þar sem konur geta rætt málin og miðlað reynslu sinni.
Á stofnfundinum verður rætt um framtíð félagsins og fyrirhugaða starfsemi. Meðal hugmynda sem verða til umræðu er möguleg þátttaka í galakvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara.
Slow Food og reynsla úr veitingageiranum
Guðfinna kynnir hugmyndirnar að baki Kokkakonum og Dóra Svavarsdóttir fjallar um Slow Food-hreyfinguna á Íslandi. Vínþjónninn Alba E. H. Hough segir frá ferli sínum og reynslu úr veitingageiranum.
Hrefna Ósk Benediktsdóttir, eigandi Bryggjuhússins, tekur á móti gestum og sýnir þeim staðinn. Þá fá allar konur sem mæta gjafapoka.
Skipuleggjendur hvetja konur úr matreiðslugeiranum til að mæta og taka þátt í að móta starfsemina.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗