Karen var í neyslu allan tímann í Klettabæ

Fókus

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 11:30

Karen Líf Svanlaugardóttir. Mynd: Sterk saman.

Karen Líf Svanlaugardóttir er 18 ára stelpa úr Reykjavík sem stundar nám við Kvikmyndaskólann. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

Karen ólst upp við erfiðar aðstæður en báðir foreldrar hennar voru í neyslu.

„Þegar mamma var á slæmum stað var ég hjá ömmu og afa á Álftanesi.“

Karen á margar góðar minningar með móður sinni, sérstaklega síðasta árið.

„Síðasta árið sem mamma lifði fórum við sjö sinnum saman til útlanda. Eins og hún vissi að hún þyrfti að búa til minningar með mér.“

Eftir að móðir hennar lést flutti Karen til föður síns sem hún hafði ekki sterk tengsl við. „Ég og eldri bróðir minn vorum í pabbahelgi og þá tók hann of stóran skammt með okkur heima. Ég vissi ekkert hvað var að gerast en bróðir minn vissi nákvæmlega hvað var að gerast.“

Hún hefði heldur viljað fara til ömmu sinnar og afa þar sem hún upplifði fullkomið öryggi.

Tveimur árum eftir andlát móður Karenar lést amma hennar vegna læknamistaka.

Samband Karenar við föður sinn var afar erfitt, hún fór í fóstur á nokkra staði og var misheppin með staði.

Að lokum fór hún í Klettabæ þar sem hún var í neyslu allan tímann.

„Ég beið eftir að starfsfólk sofnaði á næturvakt og stalst svo út. Ég lét vinkonu mína leika mömmu annarrar vinkonu svo ég gisti heilu helgarnar hjá kærasta sem ég átti og var í mikilli neyslu með honum.“

Á endanum beitti þessi kærasti hana ofbeldi og hún náði að komast frá honum.

Í dag stundar hún nám við Kvikmyndaskólann og vinnur úr sínum áföllum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅