Eiður Smári segist hneykslaður á ummælunum
Chelsea tapaði leik sínum gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina og var Eiður Smári Guðjohnsen, goðsögn félagsins, allt annað en sáttur með sína menn, sér í lagi hversu illa þeir réðu við Brian Brobbey í liði heimamanna.
„Þeir áttu í miklum erfiðleikum með einn mann og hann bara búlljaði allt Chelsea-liðið og það er Brobbey. Þessi maður. Það er eins og hann hafi verið reiður í þessum leik. Hann var til í að berjast við alla og þessi gríðarlegi líkamlegi styrkur,“ sagði Eiður Smári í Messunni á Sýn Sport.
„Ég er rosalega hissa á að hlusta á Xabi Alonso tala: Já, við erum búin að vinna alla vikuna í því hvernig á að stöðva þennan mann. Það sem þú mátt þá ekki gera sem varnarmaður er að leyfa honum að finna fyrir þér þegar boltinn er að fara til hans því að hann hefur ekkert endilega gæðin til að taka boltann sérstaklega niður og snúa og hlaupa á menn.“
Chelsea er í fimmta sæti deildarinnar en Sunderland spyrnti sér frá botninum með sigrinum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗