Bjartsýni fyrir fyrsta leik Íslands
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Írlandi á útivelli í Dublin í dag í fyrsta leik sínum í forkeppni EM 2029. Í kjölfarið bíða liðsins tveir heimaleikir í Ólafssal í Hafnarfirði gegn Sviss þremur dögum síðar og Aserbaídsjan þriðjudaginn 17. nóvember.
Finninn Pekka Salminen landsliðsþjálfari segir liðið renna að einhverju leyti blint í sjóinn gegn írska liðinu.
„Þetta verður áhugavert. Við vitum ekki mikið um írska liðið. Við þekkjum leikmennina en írska deildin er ekki hátt skrifuð og við höfum ekki aðgang að miklu myndefni úr írsku deildinni,“ sagði Finninn í samtali við Morgunblaðið.
„Við þurfum að finna leiðir til að bæta okkar eigin leik. Við þurfum að einbeita okkur að framkvæmdinni í sóknarleiknum og vinna í varnarleiknum, meðal annars við að takast á við mismunandi aðstæður og veikleika okkar.“
Spurður um leikstíl íslenska liðsins sagði hann: „Við viljum hafa mikla hreyfingu í okkar leik en meginmarkmiðið er að skapa rými til að sækja á körfuna. Það þýðir að við þurfum að útfæra hreyfingarnar og leikskipulagið vel, svo við stöndum ekki í vegi hver fyrir annarri. Tímasetningin þarf að vera rétt,“ sagði Salminen.
Hann segir það geta verið áskorun að fá leikmenn sem stunda nám og spila körfubolta erlendis til að taka þátt í landsliðsverkefnum.
„Við erum svolítið á milli steins og sleggju í þessum málum. Við erum með leikmenn í háskólum í Bandaríkjunum og þurfum að finna leið til að vinna saman. Það er ekki einfalt að fá leikmenn til landsliðsins þegar tímabilið er í fullum gangi hjá félagsliðum þeirra.“
Meiri samkeppni í hópnum
Þjálfarinn tók við íslenska kvennalandsliðinu í mars 2025 og telur íslenskan körfubolta hafa tekið framförum undanfarin misseri. Úrvalið af leikmönnum hafi aukist og samkeppnin um sæti í landsliðinu sé meiri en áður.
„Það voru margir góðir leikmenn hér áður fyrr en þeim hefur fjölgað enn frekar. Það er orðið erfitt að taka ákvarðanir um hverjar eiga að vera í hópnum. Það er mikil samkeppni og margir góðir leikmenn sem komast ekki í hópinn að þessu sinni.
Leikmenn hafa tekið stór skref fram á við á undanförnum mánuðum og það endurspeglar meðal annars gott starf hjá bestu félagsliðum landsins,“ sagði hann.
Sara Rún Hinriksdóttir, lykilmaður íslenska liðsins, tekur undir orð þjálfarans. Sara, sem er þrítug, er reynslumesti leikmaður liðsins með 38 landsleiki að baki.
„Það eru framfarir, alveg hundrað prósent. Yngri landsliðin eru að standa sig mjög vel og það er mikill metnaður í þjálfarateymunum. Deildin er líka að verða mjög góð og við erum að fá til okkar mjög öfluga erlenda leikmenn.
Það er líka meiri samkeppni um sæti í landsliðinu núna en áður. Áður var kannski ákveðinn hópur leikmanna sem var alltaf í liðinu, en núna eru fleiri stelpur sem koma til greina. Samkeppnin er því meiri en hún hefur verið,“ sagði Sara Rún við Morgunblaðið.
Með betra lið en Írland
„Þetta eru gríðarlega mikilvægir leikir fyrir okkur og ég er mjög spennt fyrir þessum fyrsta leik. Við erum stöðugt að taka skref fram á við í leik okkar og það er frábært að vera hluti af þessum hópi. Þetta eru geggjaðar stelpur sem ég fæ að vinna með og gott þjálfarateymi.
Mér finnst við vera með betra lið en Írland, en við þurfum að nýta okkar styrkleika og keyra á þær. Írska liðið er með einn stóran og öflugan leikmann sem verður spennandi að kljást við. Hún er mjög klók og hefur mikil áhrif á leik þeirra,“ sagði Sara Rún.
Hæðin ekki lengur veikleiki
Hæð leikmanna hefur lengi verið veikleiki íslenska liðsins en að sögn landsliðsþjálfarans er nú markvisst unnið að því að styrkja þann þátt. Salminen nefndi til að mynda Heiði Karlsdóttur sem leikur með Colorado State í Bandaríkjunum og er 193 sentímetrar á hæð. Hún er þó ekki í hópnum að þessu sinni.
Hin tvítuga Darina Andriivna Khomenska, sem er 192 sentímetrar á hæð, er aftur á móti í hópnum í fyrsta skipti.
„Hæðin hjálpar mér, hundrað prósent. Ég held að þetta sé mjög gott tækifæri fyrir mig. Það eru tiltölulega fáir hávaxnir leikmenn á Íslandi og samkeppnin í þeirri stöðu er því ekki nægilega mikil. Ég ætla að nýta þetta tækifæri til að öðlast reynslu,“ sagði Darina.
Darina, sem spilar með Aþenu, er eini leikmaðurinn í hópnum sem leikur í B-deildinni. „Ég sýni mikla baráttu inni á vellinum og berst fyrir öllu umfram allt annað. Ég gefst ekki auðveldlega upp og held alltaf áfram,“ sagði Darina þegar hún var beðin um að lýsa sér sem leikmanni.
„Ég er ótrúlega spennt fyrir því að æfa og spila með bestu leikmönnum landsins og öðlast þessa reynslu. Það er það sem ég er spenntust fyrir,“ sagði nýliðinn í samtali við Morgunblaðið.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗