Grunaður um ítrekaðar nauðganir og alvarlegt ofbeldi

Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra hófst í lok ágúst. Samkvæmt greinargerð lögreglu lýsti konan þá áralöngu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af hálfu mannsins, auk stjórnunar og kúgunar. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarleg ofbeldis- og kynferðisbrot gegn sambýliskonu sinni.

Maðurinn dró fyrri játningar sínar til baka í lok október en héraðsdómur taldi þær enn fá stoð í rannsóknargögnum og að áfram væri uppi sterkur grunur um brotin.

Úrskurður Landsréttar féll í gær. Með honum var staðfestur úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra frá 6. nóvember um að maðurinn sætti áfram gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til 4. desember.

Maðurinn krafðist þess að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi eða að honum yrði gert að sæta vistun á viðeigandi geðheilbrigðisstofnun í stað gæsluvarðhalds. Landsréttur staðfesti úrskurðinn með vísan til forsendna héraðsdóms.

Konan lýsti áralöngu ofbeldi

Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra hófst í lok ágúst. Samkvæmt greinargerð lögreglu lýsti konan þá áralöngu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af hálfu mannsins, auk stjórnunar og kúgunar.

Í greinargerðinni segir að maðurinn hafi í fyrri skýrslutökum játað ítrekaðar nauðganir og alvarlegar líkamsárásir gegn konunni. Hann hafi einnig viðurkennt að hafa beitt hana og börn þeirra stjórnun og kúgun.

Við rannsóknina hefur meðal annars verið aflað sjúkragagna og símtæki verið rannsökuð. Börn þeirra hafa gefið skýrslur í Barnahúsi og samkvæmt greinargerð lögreglu lýst því að hafa séð og heyrt manninn beita móður þeirra ofbeldi.

Neitaði ofbeldi við þriðju skýrslutöku

Við þriðju skýrslutöku lögreglu, 29. október, dró maðurinn fyrri framburð sinn til baka og neitaði að hafa beitt konuna ofbeldi. Hann skýrði breytinguna á framburði sínum meðal annars með því að hann hefði verið undir áhrifum lyfja við fyrri skýrslutökur.

Héraðsdómur taldi fyrri játningar hans þó enn fá stoð í rannsóknargögnum málsins.

Dómurinn tók sérstaklega fram að við mat á trúverðugleika mannsins hefði ekki verið horft til þess hvort hann kynni að hafa sagt ósatt um lyfjainntöku í lok ágúst. Læknisfræðileg gögn væru ekki afdráttarlaus um að ástand hans hefði ekki getað samrýmst frásögn hans af lyfjainntöku.

Rannsókn að ljúka

Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna frá 12. september. Landsréttur hafði áður staðfest gæsluvarðhald yfir honum í september og október.

Héraðsdómur taldi enn vera uppi sterkan grun um að maðurinn hefði framið brot sem gætu varðað allt að 16 ára fangelsi. Með hliðsjón af eðli brotanna og alvarleika þeirra stæðu ríkir almannahagsmunir til áframhaldandi gæsluvarðhalds.

Þá taldi dómurinn málið rekið með fullnægjandi hraða. Við meðferð þess í héraði kom fram að rannsókninni væri að ljúka og að málið yrði sent héraðssaksóknara á næstu dögum til ákvörðunar um hvort gefin yrði út ákæra.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅