Haaland jók vitund um norskan lax

Framherji Manchester City, Erling Haaland, er líka andlit markaðsherferðar fyrir norskar sjávar- og eldisafurðir. AFP/Darren Staples

Markaðsherferð Norðmanna fyrir lax, með knattspyrnumanninn Erling Braut Haaland í forgrunni, hefur aukið vitund neytenda í Bandaríkjunum og Kína á vörumerki Noregs, samkvæmt niðurstöðum Útflutningsráðs norskra sjávarafurða (Norges Sjømatråd).

Að sögn ráðsins hefur auglýsingaherferðin í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2026 aukið vitund neytenda um norskan lax á þessum tveimur mikilvægustu útflutningsmörkuðum Norðmanna.

Auglýstu allan sólarhringinn á Times Square

Fram kemur að í Bandaríkjunum hafi hlutfall fólks sem tengdi auglýsingaherferðina við Noreg eða vörumerkið Seafood from Norway aukist úr 16 prósentum árið 2024 í 59 prósent á þessu ári.

Þá hafi hlutfall fólks í Kína sem þekkti vörumerkið Seafood from Norway farið úr 55 prósentum í 75 prósent.

Camilla Beck og Karine Rød Haraldsson frá Útflutningsráði norskra sjávarafurða tóku þátt í herferðinni með Erling Braut Haaland þegar auglýsing með honum var sýnd á Times Square. Ljósmynd/Norges Sjømatråd

Í umfjöllun á vef Salmon Business kemur fram að herferðirnar hafi meðal annars falið í sér birtingu auglýsinga allan sólarhringinn á stóru auglýsingaskilti á Times Square í New York og 27 metra langan auglýsingaborða sem flogið var með yfir Miami.

Í umfjöllun útflutningsráðsins kemur einnig fram að bandarískir neytendur kjósi í auknum mæli norskan lax umfram aðra valkosti.

Gekk síður vel í Þýskalandi

Sér í lagi eigi það við um ungar barnafjölskyldur og fólk sem tilbúið er að greiða hærra verð fyrir gæðavörur.

Umfjöllun á vef Útflutningsráðs norskra sjávarafurða.

Umfjöllun á vef Útflutningsráðs norskra sjávarafurða. Skjáskot/Norges Sjømatråd

Herferðin gekk ekki jafn vel í Þýskalandi og hafði minni áhrif á vöruval fólks þó svo að þekking á vörumerkinu hafi aukist.

„Við teljum að í framtíðarherferðum þurfi í auknum mæli að sameina auglýsingar sem vekja athygli og enn skýrari hvata til kaupa. Markmiðið er bæði að fá neytendur til að borða lax oftar og að þeir velji meðvitað í auknum mæli norskan lax,“ segir Camilla Beck, ráðgjafi við stefnumótun hjá Norges Sjømatråd, í færslu ráðsins.

Ekki upplýst um kostnað

Í umfjöllun Salmon Business kemur fram að Erling Braut Haaland hafi gert sinn fyrsta samstarfssamning við ráðið árið 2024. Samstarfið hafi verið framlengt fyrr á árinu og sé í gildi fram til haustsins 2028.

Þá kemur fram að útflutningsráðið sé í eigu norska atvinnuvega- og sjávarútvegsráðuneytisins og sé fjármagnað með gjaldi sem lagt er á útflutning sjávarafurða.

Ekki hafi verið upplýst um kostnað við auglýsingaherferðirnar sem tengdust heimsmeistaramótinu í sumar.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅