Stacy Keach látinn
Stacy Keach, einn fremsti sviðsleikari Bandaríkjanna, sem varð þekktur fyrir að leika hinn óheflaða einkaspæjara Mike Hammer í sjónvarpi og sem var nærri búinn að eyðileggja feril sinn eftir að hann var fangelsaður árið 1984 fyrir að reyna að smygla kókaíni til Bretlands, lést í gær, 85 ára gamall.
Keach lést á heimili sínu í Magdalenka í Póllandi „eftir langa og erfiða baráttu við alvarlegan hjartasjúkdóm og hjartabilun“, sagði eiginkona hans, Malgosia Tomassi Keach, í yfirlýsingu, a því er CNN greindi frá. Keach hafði áður fengið hjartaáfall á sviði í Chicago í júní 2017.
Þótt hann væri talinn einn fremsti túlkandi Shakespeares og í miklu uppáhaldi hjá goðsagnakenndum leikstjórum á borð við John Huston, var nafn Keach órjúfanlega tengt túlkun hans á hinum harðsoðna Hammer, skálduðum einkaspæjara úr sjónvarpi sem glæpasagnahöfundurinn Mickey Spillane skapaði.
Keach vildi ekki endurtaka sig í sífellu og skildi eftir sig skrautlegt safn hlutverka. Á hvíta tjaldinu lék hann m.a. löggu undir áhrifum vímuefna, Lé konung á sviði og var einnig sögumaður í sjónvarpsþáttunum „World’s Most Amazing Videos“. Hann lék geðbilaðan ofursta í „The Ninth Configuration“ (einnig þekkt sem „Twinkle, Twinkle Killer Kane“), fór með aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum „Titus“ og lék í Óskarstilnefndri dramamynd Alexanders Payne, „Nebraska“. Í fyrra sýndi hann framúrskarandi frammistöðu sem bitur faðir George Clooney í „Jay Kelly“.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/13/1691397.jpg)