Dýrkeypt Íslandsferð þýskrar konu – Fór í mál og tapaði stórfé

Þýsk kona sem krafðist endurgreiðslu á rúmlega 157 þúsund krónum vegna gistingar sem fjölskylda hennar gat ekki nýtt sér í Íslandsferð hefur tapað dómsmáli gegn íslenskum gististað.

Konan þarf nú að greiða tæplega 835 þúsund krónur í málskostnað, eða rúmlega fimmfalda þá fjárhæð sem hún reyndi að fá endurgreidda.

Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness sem kveðinn var upp á mánudag en birtur í dag.

Heitavatnslögnin rofnaði

Málið á rætur að rekja til febrúar 2024 þegar konan kom til Íslands ásamt fjölskyldu sinni. Hún hafði bókað fimm nátta gistingu í tveimur herbergjum á gististað í Vogum, dagana 8. til 13. febrúar.

Gistingin var hluti af pakkaferð sem konan hafði keypt hjá þýskri ferðaskrifstofu, en bókunin fór fram í gegnum Expedia.

Koma fjölskyldunnar bar upp á sama dag og hraun rann yfir heitavatnslögn á Reykjanesskaga með þeim afleiðingum að heitavatnslaust varð á Suðurnesjum.

Fjölskyldan gat því ekki nýtt sér gistinguna eins og til stóð. Að sögn konunnar var fjölskyldunni neitað um aðgang að herbergjunum og stóð hún skyndilega uppi án gistingar eða frekari aðstoðar.

Ekki kemur fram í dómnum hvernig fjölskyldan leysti úr vandanum. Rekstraraðili gististaðarins reyndi hins vegar að ná sambandi við konuna daginn eftir, þegar búið var að koma fyrir rafmagnsofnum og hitablásurum. Hún mun ekki hafa svarað.

Deildu um endurgreiðsluna

Konan hélt því fram að henni hefði verið lofað fullri endurgreiðslu á gistiverðinu. Gististaðurinn hafnaði því hins vegar að slíkt loforð hefði verið gefið.

Eigendur gististaðarins sögðust hafa boðið konunni að afbóka gistinguna og skipta afbókunarkostnaði til helminga. Hún hefði hins vegar ekki gengið frá afbókuninni og því ekki átt rétt á endurgreiðslu samkvæmt bókunarskilmálum.

Konan sætti sig ekki við þessi málalok og höfðaði að lokum mál gegn rekstraraðila gististaðarins í apríl síðastliðnum.

Héraðsdómur féllst hins vegar ekki á kröfur hennar. Í niðurstöðunni var meðal annars bent á að eldgosið og heitavatnsleysið hefðu verið ófyrirsjáanleg og óviðráðanleg atvik. Þá benti dómurinn á að konan hefði ekki rift bókuninni þrátt fyrir hvatningu gististaðarins. Jafnframt taldi dómurinn að hún hefði sýnt tómlæti með því að bíða fram í apríl 2026 með að höfða mál, rúmum tveimur árum eftir að atvikin áttu sér stað.

Dómurinn benti jafnframt á að konan hefði keypt pakkaferð í gegnum þýska ferðaskrifstofu og því hefði ekki verið um beint samningssamband að ræða milli hennar og gististaðarins.

Gististaðurinn var því sýknaður af kröfum konunnar og henni gert að greiða honum 834.675 krónur í málskostnað.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅