Liverpool sendir inn fyrirspurn

Liverpool hefur áhuga á Erick Bele, 19 ára gömlum leikmanni Palmeiras í Brasilíu.

Liverpool hefur fylgst með Bele í nokkurn tíma og þegar spurst fyrir um hann. Fleiri félög hafa sýnt þessum efnilega leikmanni áhuga, þar á meðal Evrópumeistarar Paris Saint-Germain.

Bele hefur einnig vakið athygli með U-20 ára landsliði Brasilíu og lagði meðal annars upp þrjú mörk í þremur leikjum á dögunum. Hann hefur hins vegar aðeins leikið sjö leiki með aðalliði Palmeiras.

Bele skrifaði nýlega undir nýjan samning til ársins 2031 en Palmeiras er tilbúið að ræða sölu á honum fyrir um 25 milljónir punda.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅