Íslandsvinir eiga von á fjórða barninu
Brittany og Patrick Mahomes eiga von á sínu fjórða barni. Fyrir eiga þau tvær dætur og son. Samsett mynd/Instagram
Bandaríski ruðningskappinn Patrick Mahomes og eiginkona hans, Brittany Mahomes, eiga von á sínu fjórða barni. Fyrir eiga þau þrjú börn á aldrinum eins til fimm ára.
Brittany greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum á þriðjudag og birti myndir af fjölskyldunni á ströndinni. Á einni þeirra leggja Patrick og börnin hendur á óléttubumbu hennar.
„Önnur blessun frá Guði. Og þá vorum við orðin sex,“ skrifaði hún við færsluna.
Hjónin, sem bæði eru 31 árs, eiga dæturnar Sterling, fimm ára, og Golden Raye, sem verður tveggja ára í janúar, og soninn Bronze, þriggja ára.
Lék knattspyrnu á Íslandi
Brittany á tengsl við Ísland en hún bjó í Mosfellsbæ sumarið 2017 og lék knattspyrnu með sameiginlegu liði Aftureldingar og Fram. Hún gekk þá undir eftirnafninu Matthews og varð 2. deildarmeistari með liðinu. Patrick dvaldi einnig hér á landi með henni það sumar.
Þau hafa verið saman frá unglingsárum og gengu í hjónaband á Hawaii í mars 2022.
Vildi eignast börn ungur
Patrick hefur áður sagt að hann hafi alltaf viljað eignast börn ungur. Eftir fæðingu yngstu dótturinnar í fyrra útilokaði hann ekki að þau myndu bæta við sig.
„Markmiðið mitt var alltaf að eignast þrjú börn. Nú eigum við þrjú,“ sagði hann þá á blaðamannafundi. Þau ætluðu að láta þar við sitja um sinn og sjá síðar til með það fjórða.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗