Vilja byggja framleiðslustöð við Þeistareyki

Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar, og Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri MýSköpunar, við undirritunina. Ljósmynd/Aðsend

Líftæknifyrirtækið MýSköpun ehf. og Landsvirkjun hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaða afhendingu raforku og nýtingu varma frá Þeistareykjastöð vegna uppbyggingar hátækniframleiðslu á náttúrulegu astaxantíni í nágrenni aflstöðvarinnar.

Að því er segir í tilkynningu markar viljayfirlýsingin mikilvægan áfanga í undirbúningi verkefnisins og verður í kjölfar hennar gengið til formlegrar samningagerðar.

Nú verður gengið til formlegrar samningagerðar fyrir fyrirhugaða framleiðslustöð. Samhliða heldur MýSköpun áfram vinnu við tæknilega hönnun, skipulags- og leyfismál og undirbúning framkvæmda.

10.000 fermetrar

Samstarf fyrirtækjanna var kynnt í júní 2025, þegar samið var um að kanna möguleika á staðsetningu örþörungaframleiðslu í nágrenni aflstöðva Landsvirkjunar. Frá þeim tíma hefur undirbúningi verkefnisins miðað vel áfram.

Áform MýSköpunar gera ráð fyrir byggingu um 10.000 fermetra sérhæfðrar hátækniframleiðslustöðvar þar sem notuð verður háþróuð ræktunartækni.

Megináhersla verður lögð á framleiðslu náttúrulegs astaxantíns úr örþörungnum Haematococcus pluvialis. Astaxantín er verðmætt náttúrulegt andoxunarefni sem meðal annars er nýtt í fæðubótarefni og snyrtivörur á hratt vaxandi alþjóðlegum mörkuðum.

40 varanleg störf á svæðinu

Staðsetning framleiðslunnar við Þeistareyki býður upp á hagstæðar forsendur fyrir orkusækna hátækniframleiðslu þar sem aðgengi að endurnýjanlegri raforku og möguleikar á nýtingu varma frá jarðvarmaaflstöðinni, ásamt náttúrulegum aðstæðum til kælingar, geta stuðlað að hagkvæmum og skilvirkum rekstri.

Uppbyggingin verður í áföngum og er gert ráð fyrir að starfsemin geti til framtíðar skapað allt að 40 sérhæfð og varanleg störf á svæðinu. Framleiðslan verður að stærstum hluta ætluð til útflutnings.

Stefnt er að því að framkvæmdir við fyrsta áfanga hefjist á næsta ári.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅