Fjárfestar hikandi vegna skattahækkana

Þorlákshöfn Mikil uppbygging hefur verið í atvinnulífi í Ölfusi, en nú eru stjórnvöld sökuð um að skapa óvissu og fjárfestar halda að sér höndum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Bæði innlendir og erlendir fjárfestar eru hikandi við að ráðast í fjárfestingar í Sveitarfélaginu Ölfusi og veldur þar óvissa um skatta- og rekstrarlegt umhverfi fyrirtækja til nánustu framtíðar. Áhyggjur fjárfesta fara vaxandi. Þetta staðfestir Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss í samtali við Morgunblaðið.

„Við erum að fá fleiri og fleiri fréttir þess efnis og finnum það í beinum samskiptum við fjárfesta, ekki hvað síst erlenda, að stjórnmálaástandið á Íslandi er farið að trufla. Þeir sem hafa verið að koma að fjárfestingum og viðskiptaþróun hér í Þorlákshöfn, allt frá verðmætaskapandi verkefnum yfir í fjárfestingar í tengslum við höfnina og fleira, óttast að ef þeir fjárfesti og viðskiptaáætlanir gangi eftir þá verði arðurinn af fjárfestingunni færður til ríkisins í gegnum skattahækkanir,“ segir Elliði.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅