Vilja tíu ára stuðning við 800 þúsund manna her

Úkraínsk stjórnvöld vilja tryggja fjárhagslegan stuðning í að minnsta kosti tíu ár til að halda úti 800 þúsund manna her sem geti varið landið gegn nýrri árás Rússa.

Þetta segir háttsettur úkraínskur heimildarmaður við AFP-fréttastofuna.

Viðræður Rússa og Úkraínumanna með milligöngu Bandaríkjanna héldu áfram í Abú Dabí í dag, annan daginn í röð. Öryggistryggingar fyrir Úkraínu eru meðal helstu umræðuefna, en einnig er rætt um framtíðarfyrirkomulag öryggismála í Evrópu.

Þetta eru fyrstu þríhliða viðræður ríkjanna frá því í febrúar, þegar þær sigldu í strand og athygli bandarískra stjórnvalda beindist að stríðinu við Íran.

Selenskí Úkraínuforseti hefur farið lofsamlegum orðum um viðræðurnar og fagnað breyttri nálgun bandarísku sáttasemjaranna. AFP

Selenskí fagnar breyttri nálgun

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur farið lofsamlegum orðum um viðræðurnar og fagnað breyttri nálgun bandarísku sáttasemjaranna, Jareds Kushners, tengdasonar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, og Steves Witkoffs, kaupsýslumanns og sérstaks erindreka forsetans.

Selenskí hefur þó ekki útskýrt nánar í hverju breytingin felst.

„Ég sé breytingar. Ég er mjög ánægður með það sem ég heyri,“ sagði hann í Kaupmannahöfn í gær, spurður um nálgun þeirra.

Hann sagði fyrsta dag viðræðnanna hafa verið uppbyggilegan og að þar hefði verið farið nokkuð ítarlega í málin. Samninganefnd hans hefði greint sér frá því að mannúðarmál og öryggistryggingar hefðu meðal annars verið rædd.

Þá sagði Selenskí að unnið væri að umfangsmiklum fangaskiptum og að bandarískir embættismenn myndu fara til Rússlands til að ræða þau frekar.

Evrópuríki funda með samningamönnum

Rustem Umerov, aðalsamningamaður Úkraínu, sagði á Telegram að sérstakur fundur með evrópskum samstarfsríkjum yrði haldinn að viðræðunum í dag loknum.

Heimildarmaður innan úkraínsku sendinefndarinnar sagði við AFP að bandarísku erindrekarnir myndu einnig sitja þann fund.

Kushner sagði við fulltrúa ríkjanna í gær að Bandaríkin hefðu dregið úr ágreiningi stríðsaðila og vonuðust til að færast nær lausn á átökunum, sem hófust með innrás Rússa í Úkraínu árið 2022. Hann greindi ekki nánar frá því í hverju árangurinn fælist.

Á meðan viðræðurnar stóðu yfir héldu árásir áfram.

Á meðan viðræðurnar stóðu yfir héldu árásir áfram. AFP

Óttast samkomulag á kostnað Úkraínu

Hugmyndir Trumps um samkomulag við Rússa um endurskoðun á öryggisfyrirkomulagi Evrópu eftir stríðið hafa vakið ugg í Evrópu. Þar óttast menn einnig að Bandaríkjastjórn muni knýja Úkraínumenn til að sætta sig við niðurstöðu sem jafngildi í reynd ósigri.

Kushner sagði í gær að Bandaríkin vonuðust til að móta nýtt öryggisfyrirkomulag fyrir Úkraínu, Rússland og Evrópu sem tryggði „frið í áratugi, ef ekki aldir“.

Úkraínsk stjórnvöld krefjast þess að Rússar láti af hernaðaraðgerðum áður en hægt verði að ræða framtíðarfyrirkomulag öryggismála í Evrópu.

Þau hafa varað við „Jalta 2.0“ og vísa þar til samninga leiðtoga Vesturveldanna og Sovétríkjanna um skiptingu Evrópu í tengslum við lok síðari heimsstyrjaldar. Evrópusambandið hefur sömuleiðis sagt að ekki verði hægt að ræða öryggisfyrirkomulag fyrr en vopnahlé hafi tekið gildi.

Rússar kröfðust þess hins vegar nokkrum vikum fyrir innrásina í Úkraínu að Vesturlönd drægju herlið sitt til baka frá Austur-Evrópu.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur ítrekað hafnað tillögum um víðtækt vopnahlé og heitið því að rússneski herinn haldi sókn sinni áfram í Úkraínu.

Stríðslok aðeins eitt atriði á dagskrá Rússa

Heimildarmaður innan rússnesku sendinefndarinnar hafði sagt að lausn stríðsins væri „aðeins eitt atriði á dagskrá“ viðræðnanna í vikunni. Meginmarkmið Rússa væri að endurskoða öryggisfyrirkomulag álfunnar allrar.

Í sameiginlegri yfirlýsingu áréttuðu Evrópuríki, Úkraína, Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið sameiginlega skuldbindingu sína um traust öryggisfyrirkomulag í Evrópu eftir stríðið.

Trump gaf í skyn fyrir viðræðurnar að Úkraínumenn gætu þurft að láta landsvæði af hendi og sagði að landið myndi á endanum hafa „aðeins aðra lögun“.

Rússneski herinn hefur sótt hægt vestur á bóginn en ekki náð öllu Donetsk-héraði á sitt vald. Rússar krefjast þess að Úkraínumenn afhendi þeim þá hluta héraðsins sem enn eru á valdi Úkraínu.

Árásir halda áfram þrátt fyrir viðræður

Á meðan viðræðurnar stóðu yfir héldu árásir áfram. Serhíj Koretskí, forsætisráðherra Úkraínu, sagði í dag að Rússar hefðu gert harðar árásir á sex stór tengivirki í fjórum héruðum í nótt.

Aleksandr Drozdenko, héraðsstjóri í Leníngrad-héraði í Rússlandi, greindi frá því á Telegram að eldur hefði kviknað í Úst-Lúga eftir umfangsmikla drónaárás Úkraínumanna. Þar er mikilvæg útflutningshöfn fyrir olíu við Eystrasalt.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅