Wolt í miklum vexti

Í tilkynningu frá Wolt, sem hefur starfað hér á landi síðan 2023, kemur fram að nú hafa meira en 230 milljónir pantana borist frá verslunum á mörkuðum fyrirtækisins. Wolt er notað fyrir mun meira en mat frá veitingarstöðum og nú hafa meira en 230 milljónir pantana borist frá verslunum á heimsvísu. Þetta kemur fram í fyrstu alþjóðlegu verslunarskýrslu fyrirtækisins, Retail Report, sem fjallar um hvernig hraðar heimsendingar frá verslunum í nágrenninu verða sífellt stærri hluti af daglegu lífi fólks.

Skýrslan byggir á eigin gögnum Wolt ásamt evrópskum rannsóknum á smásölu og viðtölum við smásala. Nú panta meira en tvær milljónir manna vörur frá verslunum í gegnum Wolt í hverjum mánuði. Á fjórða ársfjórðungi 2025 var smásala meira en fjórðungur af heildarverðmæti Wolt á heimsvísu. Vöruflokkar utan dagvöru, svo sem raftæki, gæludýravörur og heilsu- og snyrtivörur, hafa meira en þrefaldað hlutdeild sína í verslunarsölu Wolt frá árinu 2022.

Þessi þróun sést einnig á Íslandi. Samkvæmt könnuninni European Consumer conditions höfðu 65% fullorðinna á Íslandi keypt á netinu af íslenskum smásala eða þjónustuaðila á síðasta ári. Samkvæmt nýlegri rannsókn Rannsóknaseturs verslunar (RSV) voru verð, vöruúrval og afhendingartími þeir þættir sem oftast voru nefndir þegar valið var á milli íslenskra og erlendra vefverslana.

Sigurpáll Melberg

„Við sjáum skýra breytingu á því hvernig fólk verslar. Viðskiptavinir nota Wolt í auknum mæli fyrir meira en tilbúinn mat, hvort sem það eru dagvörur, apóteksvörur, eitthvað fyrir gæludýrið, gjöf á síðustu stundu eða jafnvel unaðsvörur. Við viljum færa fólki það besta úr nærumhverfi sínu á nokkrum mínútum og hjálpa íslenskum smásölum að ná til viðskiptavina sem eru þegar að versla á netinu. Fyrir margar íslenskar verslanir er sala í gegnum Wolt leið til að keppa við erlenda netverslun,“ er haft eftir Sigurpáli Melberg, forstöðumanni smásölu hjá Wolt á Íslandi.

Frá því Wolt hóf starfsemi á Íslandi árið 2023 hafa stórar verslanir á borð við Hagkaup, Costco, Huppu, Ísbúð Vesturbæjar og Blush bæst í hópinn, auk fjölda blómabúða, hverfisverslana, gæludýraverslana og bakaría.

Endurtekin kaup og stærri innkaupakörfur

Í tilkynningunni segir að Verslunarskýrsla Wolt sýni að pantanir frá verslunum séu að verða að vana hjá mörgum viðskiptavinum. Sex af hverjum tíu sem panta vörur frá verslunum í gegnum Wolt panti aftur næsta mánuð.

„Þetta er gott tækifæri fyrir íslenskar verslanir til að ná til fleiri viðskiptavina og verða hluti af daglegu lífi þeirra. Wolt gerir vöruúrvalið aðgengilegt á netinu og kynnir það fyrir nýjum viðskiptavinum. Við hjálpum fyrirtækjum að tengjast dreifikerfum sem koma vörunum heim að dyrum, á innan við klukkustund,“ segir Sigurpáll.

Verðmæti matvörupantana jókst um 46% árið 2025 og 48% pantana innihalda nú að minnsta kosti tíu vörur. Þetta bendir til þess að viðskiptavinir noti þjónustuna í auknum mæli til að sinna stærri innkaupum.

Wolt virðist einnig vera gátt fyrir viðskiptavini að nýjum verslunum. Samkvæmt skýrslunni gerðu 28% viðskiptavina sín fyrstu kaup hjá tilteknum söluaðila í gegnum Wolt.

„Þegar allt kemur til alls snýst þetta um að auðvelda fólki að nálgast vörur og þjónustu í nærumhverfinu, hvort sem það er tilbúinn matur eða hversdagslegar nauðsynjar. Um leið viljum við hjálpa fyrirtækjum af öllum stærðum að vaxa og dafna,“ segir Sigurpáll.

Hátíðir auka eftirspurn

Evrópsk gögn úr skýrslunni sýna einnig að eftirspurn eykst í kringum hátíðir og stóra verslunardaga. Blómapantanir í gegnum Wolt eru 32 sinnum fleiri á Valentínusardaginn, á meðan sala á raftækjum eykst um 440% á Svörtum föstudegi. Þá eykst sala á leikföngum og spilum um 133% yfir jólahátíðina, þegar þarf að útvega gjafir fljótt.

Úr verslunarskýrslu Wolt – alþjóðlegar tölur:

  • Meira en 230 milljónir pantana frá verslunum frá árinu 2015.
  • Meira en tvær milljónir viðskiptavina panta vörur frá verslunum í hverjum mánuði.
  • Smásala nam meira en fjórðungi af heildar söluverðmæti á markaðstorgi Wolt á fjórða ársfjórðungi 2025.
  • Sex af hverjum tíu viðskiptavinum sem panta frá verslunum panta aftur næsta mánuð.
  • Verðmæti matvöru pantana jókst um 46% árið 2025.
  • Meira en 40.000 verslanir voru virkar á markaðstorgi Wolt á fjórða ársfjórðungi 2025, sem er 43% aukning frá sama tímabili árið áður.

Wolt er tæknifyrirtæki með höfuðstöðvar í Helsinki sem auðveldar fólki að finna og panta frá veitingastöðunum, verslunum í nærumhverfinu og matvöruverslunum og fá sent þangað sem það er statt. Til að gera þetta mögulegt þróar Wolt tæknilausnir fyrir allt frá vörustjórnun, smásöluhugbúnaði og greiðslulausnum til reksturs matvöruverslana á borð við Wolt Market. Wolt var stofnað árið 2014 og DoorDash keypti fyrirtækið árið 2022. DoorDash er með starfsemi í meira en 40 löndum og Wolt starfar í meira en 30 þeirra. Wolt hóf starfsemi á Íslandi í maí 2023 og er í boði í Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri, Selfossi og í Hveragerði. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅