Stríðið gæti kostað tæplega 97 þúsund milljarða

Íranskar konur sækja herþjálfun fyrir sjálfboðaliða í Janfada-þjálfunarbúðunum sem komið hefur verið upp fyrir konur á Azadi-torgi í Teheran. AFP

Uppsafnað efnahagstap Persaflóaríkjanna vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans gæti numið 790 milljörðum Bandaríkjadala fram til ársins 2030, jafnvirði tæplega 96.700 milljarða íslenskra króna.

Þetta kemur fram í skýrslu tryggingafélagsins Allianz Trade sem birt var í dag.

Beint eignatjón á svæðinu er metið á rúmlega 200 milljarða dala, sem samsvarar rúmlega 24.470 milljörðum króna.

Persaflóaríkin urðu harðast úti í hefndaraðgerðum Írana eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran 28. febrúar og stríðið hófst.

Íranar brugðust við með því að takmarka siglingar um Hormússund og ráðast á borgaralega innviði, þar á meðal flugvelli, hafnir, orkumannvirki og kennileiti. Árásir beindust einnig að bandarískum eignum og mannvirkjum í ríkjum á svæðinu sem eru bandamenn Bandaríkjanna.

Þriðjungur orkumannvirkjanna stórskemmdur

Samkvæmt skýrslunni varð eignatjónið að mestu í ríkjum sem eru háð siglingum um Hormússund og einkum á orkuinnviðum.

Yfir 80 orkumannvirki urðu fyrir árásum í stríðinu, flest í Kúveit, Katar og Barein. Um þriðjungur þeirra varð fyrir alvarlegum skemmdum.

Áhrif stríðsins ná þó langt út fyrir tjónið á orkuinnviðum. Það hefur einnig haft áhrif á ferðaþjónustu og fasteignamarkað og er búist við hægari vexti í þeim greinum á næstu árum.

Allianz Trade áætlar að uppsafnað efnahagstap aðildarríkja Samstarfsráðs Persaflóaríkjanna verði 790 milljarðar dala á árunum 2026 til 2030. Þar er átt við muninn á þeirri verðmætasköpun sem spáð var fyrir stríðið og þeirri sem nú er gert ráð fyrir.

Í skýrslunni er þetta uppsafnaða framleiðslutap metið á 5,9 prósent af vergri landsframleiðslu miðað við þá þróun sem spáð var fyrir stríð.

Samkvæmt skýrslunni varð eignatjónið að mestu í ríkjum sem eru háð siglingum um Hormússund og einkum á orkuinnviðum. AFP

Beina fé úr ríkisfjárfestingarsjóðum heim

Búist er við að Persaflóaríkin bregðist við tapinu með því að beina meira fé úr ríkisfjárfestingarsjóðum sínum til verkefna innanlands.

Afgangur af viðskiptum ríkjanna við útlönd er talinn munu dragast saman um helming. Á móti komi að hluta aukinn flutningur fjármagns úr ríkisfjárfestingarsjóðunum heim. Þannig gætu um 120 milljarðar dala til viðbótar, jafnvirði um 14.700 milljarða króna, farið í fjárfestingar innanlands fram til ársins 2030, á kostnað fjárfestinga erlendis.

„Stríðið eykur þörfina á útgjöldum innanlands, enda hefur forgangsröðun stjórnvalda færst frá risaverkefnum yfir í verkefni sem auka viðnámsþrótt og öryggi,“ segir í skýrslunni.

Gert er ráð fyrir að útgjöld Persaflóaríkjanna til innviða innanlands og varnarmála aukist í samtals 380 til 400 milljarða dala fram til ársins 2030. Það samsvarar um 46.500 til 48.900 milljörðum króna.

Þar gætu falist fjárfestingartækifæri að verðmæti um 160 milljarða dala, eða um 19.600 milljarða króna, fyrir einkaaðila og erlenda fjárfesta.

Hagnaður Aramco jókst um rúman þriðjung

Þrátt fyrir stríðið og takmarkanir á siglingum um Hormússund og Bab al-Mandab-sund greindi sádiarabíska olíufélagið Aramco frá því í síðustu viku að hagnaður þess eftir skatta hefði aukist um 34,6 prósent á þriðja ársfjórðungi. Takmarkanir Írana á siglingum um Hormússund hafa þrýst olíuverði upp.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir hins vegar ráð fyrir að verg landsframleiðsla Sádi-Arabíu, eins stærsta olíuframleiðsluríkis heims, dragist saman um 3,3 prósent á árinu. Það er fimm prósentustigum lakari niðurstaða en sjóðurinn spáði í júlí.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅