Enskur miðill fjallar um Guðjohnsen-feðga

Eiður Smári og Andri Lucas.

Eiður Smári og Andri Lucas. mbl.is/Samsett mynd

Enska dagblaðið The Sun fjallar um Andra Lucas Guðjohnsen og föður hans Eið Smára í grein þar sem markaskorun Andra Lucasar er í brennidepli.

Miðillinn rifjar upp að Eiður Smári hafi tvívegis orðið enskur meistari með Chelsea og segir son hans nú vekja athygli í ensku B-deildinni. Andri skoraði fyrra mark Blackburn í 2:1-sigri á West Ham á laugardag.

The Sun ber færanýtingu Andra saman við nokkrar af stærstu stjörnum Evrópuboltans, þar á meðal Erling Haaland, Kylian Mbappé og Harry Kane en Andri er fyrir ofan þá báða.

Þá er ferill Eiðs Smára rakinn og hann sagður goðsögn hjá Chelsea. Blaðið rifjar upp að hann hafi einnig leikið með Barcelona, Bolton, Monaco og Tottenham áður en hann lagði skóna á hilluna.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅