Bjóða aðstoð við fjölkvæni

Ímaminn Bashir Ahmed í moskunni í Uppsala var þegar til í að aðstoða við fjölkvæni og vísaði til orða Kóransins þar um. Ljósmynd/Wikipedia.org/Oden

Bænaleiðtogar, eða ímamar, við nokkrar stórar sænskar moskur bjóða fram aðstoð sína við menn sem vilja taka sér fleiri eiginkonur – eða vísa þeim áfram til aðila sem framkvæmt geta vígsluna í trássi við lögbundið bann við fjölkvæni í Svíþjóð.

Frá þessu greinir rannsóknarblaðamennskuþátturinn Uppdrag granskning hjá sænska ríkisútvarpinu SVT eftir að fréttamenn þáttarins fóru með faldar myndavélar í moskur og báðu ímama og sjeika, þeir síðarnefndu eru trúarlegir fræðimenn, eða öldungar, í íslamstrú, um aðstoð við að ganga í hjónaband til viðbótar við fyrra hjónaband.

Greinir Uppdrag granskning frá því að beðið hafi verið með að senda þáttinn út þar sem þrír einstaklingar þurftu að láta af störfum áður en málið kæmist í hámæli.

Fengu nei í sex af fimmtán moskum

Í moskunni í Uppsala fær fréttamaður þáttarins að hitta ímaminn Bashir Ahmed sem sér ekkert athugavert við fjölkvæni og vitnar í eftirfarandi orð Kóransins: „Kvænist þeim konum sem yður þóknast.“

Af fimmtán moskum fá útsendarar Uppdrag granskning neitun í sex og þau svör að þar sé sænskum lögum fylgt og könnun á hjónavígsluskilyrðum framkvæmd með upplýsingum frá sænska skattinum. Níu af þeim ímömum, sjeikum eða ráðgjöfum, sem fréttamönnunum var vísað til, lofa að gefa manninn saman við aðra eiginkonu – eða að minnsta kosti vísa honum til einhvers annars sem það muni gera.

Yaser Abu Jheisheh, formaður moskunnar í Uppsala, dylur ekki viðbrögð sín þegar hann fær að sjá upptökuna af Bashir Ahmed.

„Þetta særir mig í hjartanu,“ segir Jheisheh sem sama dag boðaði til neyðarfundar í moskunni þar sem stjórn hennar vék ímaminum úr starfi og sagði Jheisheh í framhaldinu að gjörðir hans stefndu langvarandi starfi moskunnar að breiðri samstöðu með sænsku samfélagi í hættu.

Hann boðar til neyðarfundar sama kvöld og stjórnin víkur ímamnum úr starfi. Gjörðir hans stefna langtímastarfi moskunnar við breiða samvinnu í samfélaginu í hættu, að sögn Yasers Abu Jheisheh.

„Þarft ekki að nefna að þú hafir fundið mig“

Við Stenhagen-moskuna í Uppsala fær fréttamaðurinn að tala við sjeik Masud Mohamad, hann leiðir bænir og situr í stjórn sjálfseignarstofnunarinnar sem rekur moskuna.

Hann segir já við beiðni fréttamanns og lofar að moskan muni útvega vitni sem þekki manninn ekki. „Þú þarft ekki að nefna að þú hafir fundið mig,“ segir sjeikinn sem nú hefur þurft að láta af stjórnarstöðu sinni.

Moskan í Helsingborg vísar á sjeik Tarek Hussein sem hefur haldið fyrirlestra um hjónabandsmál. Á ráðgjafarfundi með tveimur fréttamönnum, sem þykjast hjón, telur sjeikinn „eiginkonuna“ á að leyfa eiginmanninum að taka sér aðra konu þótt henni sé þvert um geð.

Moskan í Helsingborg segir nú að sjeik Tarek sé ekki starfsmaður þar, hún geti því ekki borið ábyrgð á orðum hans, en muni endurskoða á hverja hún vísi fólki með erindi.

Hægt að bjarga fyrir 25.000 krónur

Í Halmstad fellst ímaminn Mouad Zamzam á að framkvæma vígslu. Hann lét af störfum í sumar og vill hvorki hann né moskan gefa upp ástæður starfslokanna.

Moskan í Örebro gefur misvísandi svör. Þar er fyrst vísað á ráðgjafann Abu Aous sem segir í síma að unnt sé að gefa saman „fyrir utan moskuna“ fyrir 2.000 sænskar krónur, jafnvirði 25.000 íslenskra. Daginn eftir sendir hann hins vegar SMS-skilaboð þess efnis að um misskilning hafi verið að ræða.

Við heimsókn í moskuna segir ímam þvert nei við vígslunni. Abu Aous hefur verið vikið frá störfum og moskan ætli að endurskoða hverjir mega svara fyrirspurnum.

Fjórar moskur til viðbótar segjast ekki geta framkvæmt vígsluna sjálfar, en vísa áfram til annars ímams. Uppdrag granskning nær sambandi við einn þeirra sem segist geta framkvæmt vígslu fyrir 1.000 sænskar krónur, 12.500 íslenskar.

SVT

SVT-II (kort yfir moskurnar)

Hér má horfa á þátt Uppdrag granskning

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅