Þetta hafa veðbankar að segja um leik Íslands á föstudag
Íslenska karlalandsliðið mætir Búlgaríu á útivelli í næstsíðasta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar á föstudagskvöldið.
Ísland er á toppi riðilsins og má nánast segja að um skyldusigur sé að ræða gegn slöku búlgörsku liði.
Veðbankar hafa trú á íslenska liðinu og er stuðull á sigur á Lengjunni til að mynda 1,78 gegn 3,76 hjá Búlgörum. Stuðull á jafntefli er 3,21.
Leikurinn á föstudag hefst klukkan 19:45 á íslenskum tíma. Lokaleikur Íslands í keppninni verður svo hér heima gegn Lúxemborg á mánudag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗