Ögmundur kemur Ólafi Ragnari til varnar eftir grein Lúðvíks – „í hæsta máta ósanngjarnt“
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, kemur Ólafi Ragnari Grímssyni til varnar eftir beitta grein lögmannsins Lúðvíks Bergvinssonar. Hann segir ósanngjarnt að reyna að hafa þann heiður af forsetanum fyrrverandi að hafa vísað Icesave deilunni til þjóðarinnar.
„Mörgum verður nú mál að argast út í Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta landsins, fyrir að hafa vogað sér að tala fyrir herlausum norðurslóðum og friðarsamningum í Úkraínu og það sem greinilega þykir sýnu verst að hafa leyft sér að vísa í ummæli bannfærðs manns, Segey Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands,“ segir Ögmundur í aðsendri grein á Vísi. „Utanríkisráðherra vor, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur fundið að málflutningi Ólafs Ragnars bæði innanlands og utan á þessum nótum og hafa margir orðið til að hneykslast henni til samlætis.“
Alltaf rangt fyrir sér?
Grein Ögmundar virðist einnig vera nokkurs konar viðbragð við harðorðri grein hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi þingmanns Samfylkingarinnar, Lúðvíks Bergvinssonar, á sama miðli. En Lúðvík gagnrýndi Ólaf Ragnar fyrir að uppnefna Þorgerði Katrínu og rifjaði upp ýmis mál úr fortíð hans, svo sem að hann hefði talað vel um Pútín og útrásarvíkinga, verið á móti EES og NATO og hreykt sér af Icesave málinu sem þrotabú Landsbankans hefði hvort eð er greitt.
Það er þetta síðasta atriði sem Ögmundur víkur sérstaklega að, gamla flokksbróður sínum í Alþýðubandalaginu, til varnar.
„Alltaf rangt fyrir sér? En þetta er ekkert nýtt segja borubrattir gagnrýnendur Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann hafi alltaf haft rangt fyrir sér! Heita megi að allt líf hans hafi einkennst af mistökum segir einn gamall vinnufélagi minn á Alþingi og góður vinur, Lúðvík Bergvinsson, krati, í nýlegri grein á vísi.is þar sem hann gerir ÓRG ábyrgan fyrir meintum mistökum - greinilega einkum vinstri manna - í tímans rás,“ segir Ögmundur.
Íslendingar á hnjánum
Segir Ögmundur að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafi reiðst mjög vegna þjóðaratkvæðagreiðslnanna um Icesave árin 2010 og 2011 og hafi reynt allt hvað unnt var til að „þvinga Íslendinga til þess að lúffa fyrir Bretum og Hollendingum.“
Sjá einnig:
Lúðvík hjólar í Ólaf Ragnar – „Gagnrýni á höfundinn er aldrei bara gagnrýni. Hún er móðgun við embættið“
Á þessum bæjum hafi það þótt afleitt fordæmi að láta skattgreiðendur ekki möglunarlaust leysa fjármálamenn úr snörunni eins og hafi alls staðar tíðkast.
„Síðan var það hitt að þótt þjóðaratkvæðagreiðsla kynni að eiga rétt á sér um minniháttar mál ætti það alls ekki við um milliríkjasamninga af þessu tagi. Þetta var hið heilaga orð sem látið var út ganga,“ segir Ögmundur.
Minnir hann á að þegar þessi mál voru rædd hafi enginn getað vitað með vissu hvernig þetta myndi rætast. Það er hversu mikið var til í þrotabúi Landsbankans upp í kröfur. Það hafi hins vegar verið vitað að Íslendingum var gert að taka áhættuna og borga umsýslu og vexti. „En framar öllu skyldu þeir beygðir til að falla fram á hnén,“ segir Ögmundur harðorður.
Heiður Ólafs Ragnars
Vísar hann einnig í bók sína Rauða þráðinn þar sem ítarlega sé fjallað um Icesave deiluna. En þar titlaði hann málið sem „stærsta mál íslenskrar stjórnmálasögu síðari tíma.“ Ekki vegna peningaupphæða heldur vegna áhrifa á stjórnmál framtíðarinnar.
„Það er í hæsta máta ósanngjarnt að reyna að hafa þann heiður af Ólafi Ragnari Grímssyni að hafa vísað Icesave deilunni til þjóðarinnar,“ segir Ögmundur að lokum. „Geri menn það þyrfti yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar að fylgja með í þeirri spyrðu, öll þau sem nýttu sér tækifærið til þess að vísa Icesave á bug. Hans meinti glæpur var ekki annar en sá að vísa málinu til þjóðarinnar.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗