Frábært tækifæri fyrir mig

Darina Andriivna Khomenska er nýliði í íslenska landsliðinu.

Darina Andriivna Khomenska er nýliði í íslenska landsliðinu. mbl.is/Eyþór

Darina Andriivna Khomenska er nýliði í íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta.Hún er spennt fyrir því að fá tækifæri til að æfa og spila með bestu leikmönnum landsins.

Ísland mætir Írlandi á útivelli í dag í fyrsta leik sínum í undankeppni EM.

„Ég er ótrúlega spennt fyrir því að spila með landsliðsleikmönnum, æfa með þeim og öðlast þessa reynslu. Það er það sem ég er mest spennt fyrir,“ sagði Darina.

Darina er 1,92 metrar á hæð en skortur hefur verið á hávöxnum leikmönnum í íslenskum kvennakörfubolta.

Hún segir hæðina geta reynst sér vel og landsliðsverkefnið mikilvægt tækifæri til að bæta við reynslu sína.

„Hæðin hjálpar mér, hundrað prósent. Ég held að þetta sé mjög gott tækifæri fyrir mig. Það eru tiltölulega fáir hávaxnir leikmenn á Íslandi og samkeppnin í þeirri stöðu er því ekki nægilega mikil. Ég ætla að nýta þetta tækifæri til að öðlast reynslu,“ sagði hún.

Aðspurð hvernig leikmann hún væri lýsti Darina sér sem miklum baráttuleikmanni.

„Ég myndi lýsa mér sem leikmanni sem berst fyrir öllu. Ég sýni mikla baráttu inni á vellinum umfram allt annað. Ég gefst ekki auðveldlega upp og held alltaf áfram.“

Aþena í pólitískri baráttu

Darina leikur með Aþenu og er eini leikmaður íslenska landsliðshópsins sem leikur í B-deildinni.

Aþena hefur undanfarið þurft að berjast fyrir því að halda aðstöðu sinni í Austurbergi í Breiðholti og hafa forsvarsmenn félagsins gagnrýnt Reykjavíkurborg vegna málsins.

„Við erum að reyna að halda okkur á sama stað. Þetta er endalaus barátta og við erum í töluverðri pólitískri baráttu um þessar mundir. Það fer mikill tími og kraftur í það,“ sagði Darina.

Stefnir á atvinnumensku

Hún á eftir að kynnast þjálfara landsliðsins betur en segir samskiptin hafa verið góð hingað til.

Darina stefnir jafnframt á atvinnumennsku í framtíðinni og hefur áhuga á að spreyta sig beggja vegna Atlantshafsins.

„Já, hundrað prósent. Mig langar að komast til Bandaríkjanna, öðlast reynslu þar og fara síðan til Evrópu,“ sagði hún.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅