Flókin fyrirtaka í 71 manna málinu
Dómsalurinn var þegar þétt skipaður nokkru áður en þinghald hófst. Einhverjir fylgjast með í dómsal 102 eða bíða fyrir utan dómsalinn. mbl.is/Þorsteinn
Þétt er setið í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur nú þegar fyrirtaka í Landsbankamálinu fer fram. Líkt og í þingfestingunni er þessi stærsti salur dómstólsins yfirfullur og er þinghaldi einnig streymt í sal 102 þar sem verjendur og sakborningar geta fylgst með gangi mála komist þeir ekki fyrir í aðaldómsalnum.
Í málinu er í heild 71 maður ákærður. Tveir menn eru ákærðir fyrir að hafa nýtt sér kerfisvillu í netbanka Landsbankans til að millifæra rúmlega 120 milljónir króna, en þeir neituðu sök við þingfestingu málsins í síðustu viku.
Fjórir til viðbótar eru svo sagðir gegna lykilhlutverki í að koma fjármunum áfram inn á aðra einstaklinga og neita einnig sök við alvarlegustu ásökunum í ákæru.
Millifærðu 120 milljónir
Samkvæmt ákærunni millifærðu mennirnir samtals 120,3 milljónir króna í 218 færslum á tímabilinu 11. til 28. október 2025. Ólögmætur ávinningur af háttseminni er talinn hafa numið 95,6 milljónum króna.
Dómari hóf þinghaldið á því að taka fram að fyrirtakan í dag væri sérstaklega haldin fyrir þá sem ættu eftir að taka afstöðu í málinu, en einhver hluti frestaði því að taka ákvörðun síðast og einhverjir voru ekki komnir með lögmenn eða mættu við þinghaldið.
Þá væri þetta jafnframt sérstaklega ætlað sem fyrirtaka fyrir þá sem ætluðu að játa sök, en svo virðist vera sem afgreiða eigi mál þeirra sem játningarmál og verða þau þá líklega slitin frá aðalmálinu. Slíkt myndi koma í veg fyrir að þeir sakborningar og verjendur þeirra þyrftu að mæta í komandi fyrirtökur og sitja aðalmeðferð málsins, en miðað við fjölda sakborninga gæti slíkt orðið nokkuð tímafrekt og kostnaðarsamt.
Ekki taldir lykilgerendur í málinu
Þeir sakborningar sem byrja að koma fyrir dóminn eru allir meðal þeirra 65 sem ekki eru taldir lykilgerendur í málinu, heldur að þeir hafi komið að peningaþvættishluta málsins með því að hafa tekið við peningum með millifærslu og tekið út í reiðufé.
Tveir af fyrstu þremur sakborningunum játuðu brot sín en báru við gáleysi. Saksóknari vísaði til 30 daga refsingar sem hæfilegs dóms en tók fram að hann teldi það dómsins að ákveða hvort hún væri skilorðsbundin. Verjendur mannanna vísuðu jafnframt til 30 daga refsingar skilorðsbundið.
Þriðji maðurinn mætti án verjanda og óskaði eftir að fundinn yrði verjandi fyrir sig.
Fyrirtakan er með nokkuð óhefðbundnu sniði í ljósi fjölda sakborninga og er fjöldi túlka og aðstoðarmanna í og við dómsalinn til að leiðbeina sakborningum og verjendum þeirra. Þá er áformað að hún geti tekið fjórar klukkustundir, en slíkur tími er ekki algengur í fyrirtökum, sem alla jafna eru nær því að taka 5-20 mínútur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗