Ók undir áhrifum og hljóp frá lögreglu
Eftir að hafa lagt bílnum við hús í Sléttahrauni hljóp hún á brott og sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að nema staðar. Var hún því einnig sakfelld fyrir brot gegn lögreglulögum. Ljósmynd/Colourbox
Kona hefur verið dæmd í 90 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum áfengis og akstur svipt ökurétti.
Í öðru tveggja tilvika sem ákært var fyrir var hún einnig undir áhrifum kókaíns og hljóp frá lögreglu.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness 6. nóvember. Konan játaði brotin afdráttarlaust fyrir dómi og krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa.
Hljóp á brott og sinnti ekki fyrirmælum
Fyrra brotið átti sér stað 17. maí þegar konan ók um Flatahraun og Sléttahraun í Hafnarfirði, svipt ökurétti og undir áhrifum áfengis og kókaíns. Vínandamagn í blóði hennar mældist 1,71 prómill.
Eftir að hafa lagt bílnum við hús í Sléttahrauni hljóp hún á brott og sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að nema staðar. Var hún því einnig sakfelld fyrir brot gegn lögreglulögum.
Síðara brotið var framið 22. ágúst þegar hún ók um Flatahraun að Langeyrarvegi í Hafnarfirði. Hún var þá enn svipt ökurétti og mældist vínandamagn í blóði hennar 1,48 prómill.
Fyrri viðurlög höfðu ekki dugað
Konan hafði áður þrisvar gengist undir sektir vegna umferðarlagabrota. Árið 2022 var henni gert að greiða 180 þúsund krónur fyrir akstur án gildra ökuréttinda og undir áhrifum áfengis. Árið eftir nam sektin 360 þúsund krónum fyrir ölvunarakstur og akstur svipt ökurétti. Hún gekkst síðan undir 200 þúsund króna sekt árið 2025 fyrir akstur svipt ökurétti.
Við ákvörðun refsingar nú leit dómurinn til sakaferils hennar. Auk fangelsisrefsingarinnar og ævilangrar sviptingar ökuréttar var konunni gert að greiða tæplega 297 þúsund krónur í sakarkostnað.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗