Þýski herinn bannar kínverska dróna

Erlent | AFP | 11.11.2026 | 9:49

Gerðir sem framleiddar eru í Kína verða ekki lengur notaðar.

Gerðir sem framleiddar eru í Kína verða ekki lengur notaðar. AFP

Þýski herinn hefur bannað notkun dróna sem framleiddir eru í Kína, meðal annars við þjálfun, og er að skipta þeim út fyrir evrópskar gerðir. Þetta tilkynnti þýska varnarmálaráðuneytið í dag.

Ráðuneytið vísar til þess að tryggja þurfi gagnaöryggi og öryggi upplýsingakerfa.

„Gerðir sem framleiddar eru í Kína verða ekki lengur notaðar […] og þeim kerfum sem nú eru í notkun verður skipt út fyrir vörur frá innlendum framleiðendum eða, eftir því sem við á, evrópskum framleiðendum,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅