Inga Lóa nýr mannauðsstjóri

Inga Lóa Karvelsdóttir er nýr mannauðsstjóri Steypustöðvarinnar.

Inga Lóa Karvelsdóttir er nýr mannauðsstjóri Steypustöðvarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Inga Lóa Karvelsdóttir hefur tekið við sem mannauðsstjóri Steypustöðvarinnar. Hún kemur úr röðum fyrirtækisins en hún hóf störf árið 2022 sem mannauðsfulltrúi í einingaframleiðslu Steypustöðvarinnar í Borgarnesi.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Inga Lóa er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Lærdómsrík ár

„Tilfinningin er góð og ég er fyrst og fremst mjög spennt að takast á við stærra verkefni,“ er haft eftir Ingu Lóu í tilkynningunni.

„Þessi fjögur ár hafa verið gríðarlega lærdómsrík og skemmtileg. Ég hlakka til að byggja áfram á því sem við höfum nú þegar byggt upp.“

Þá er haft eftir Birni Inga Victorssyni, forstjóra Steypustöðvarinnar, að ánægjulegt sé að sjá fólk vaxa innan fyrirtækisins og taka að sér stærri hlutverk.

„Inga Lóa hefur vaxið hratt hjá okkur og þekkir Steypustöðina og fólkið okkar vel.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅