Þýski herinn bannar kínverska dróna
Erlent | AFP | 11.11.2026 | 9:49
Þýski herinn hefur bannað notkun dróna sem framleiddir eru í Kína, meðal annars við þjálfun, og er að skipta þeim út fyrir evrópskar gerðir. Þetta tilkynnti þýska varnarmálaráðuneytið í dag.
Ráðuneytið vísar til þess að tryggja þurfi gagnaöryggi og öryggi upplýsingakerfa.
„Gerðir sem framleiddar eru í Kína verða ekki lengur notaðar […] og þeim kerfum sem nú eru í notkun verður skipt út fyrir vörur frá innlendum framleiðendum eða, eftir því sem við á, evrópskum framleiðendum,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗