Opnar sig um að hafa líka glímt við hjartavandræði í sumar - „Hvernig getur þetta verið að koma fyrir mig?“

Scott McTominay, miðjumaður Napoli og skoska landsliðsins, hefur greint frá því að hann hafi þurft að gangast undir hjartameðferð aðeins tveimur dögum fyrir fyrsta leik Skotlands á HM í sumar.

McTominay, sem er 29 ára, glímdi við óreglulegan hjartslátt og þurfti að fá rafstuð til að koma hjartslættinum í réttan takt.

„Ég var í frábæru formi og svo gerist eitthvað svona. Maður hugsar bara: Hvernig getur þetta verið að koma fyrir mig?“ segir McTominay.

Skotinn lék alla þrjá leiki þjóðar sinnar á HM en liðið féll úr leik í riðlakeppninni. Hann viðurkennir að mótið hafi verið mikil vonbrigði.

Í september gekkst McTominay svo undir minniháttar hjartaaðgerð í Manchester og missti af landsleikjum Skotlands í kjölfarið.

Hann er nú búinn að ná sér að fullu og er mættur aftur í landsliðshópinn.

„Mér líður miklu betur. Aðgerðin gekk mjög vel og ég er bara ánægður að vera kominn aftur á völlinn,“ segir McTominay.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅