BBC varð ekki að ósk sinni
Alríkisdómari hefur heimilað að meiðyrðamál Donalds Trump Bandaríkjaforseta gegn BBC, þar sem krafist er milljarða dala í bætur, haldi áfram. Kröfu breska ríkisútvarpsins um að málinu yrði vísað frá hefur verið hafnað.
Trump hefur sakað BBC um að hafa klippt heimildarmynd á villandi hátt til að láta líta út fyrir að hann hefði hvatt til ofbeldis þegar hann sagði stuðningsmönnum sínum að ganga að bandaríska þinghúsinu 6. janúar 2021.
Hann hefur krafist að minnsta kosti 5 milljarða dala, eða um 530 milljarða króna, fyrir hvora kröfu um sig, annars vegar vegna meiðyrða og hins vegar á grundvelli neytendaverndarlaga Flórída.
Jeffrey T. Kuntz, dómari við alríkisdómstól Bandaríkjanna, hafnaði í gær kröfu BBC um að meiðyrðamálinu yrði vísað frá, en vísaði frá kröfunni sem byggð var á neytendaverndarlögum Flórída.
Talsmaður BBC sagði í stuttri yfirlýsingu að útvarpið væri „hissa á þessari ákvörðun“ en virti vald dómstólsins.
„Við erum áfram fullviss um afstöðu okkar og munum halda áfram að bregðast við eftir réttum lagalegum leiðum,“ sagði enn fremur í yfirlýsingunni.
Trump fagnaði úrskurði dómarans í færslu á Truth Social og kallaði hann „gríðarlegan sigur“.
„Við munum halda áfram að berjast gegn, og sigra, alla þá sem reyna að blekkja bandarísku þjóðina!“ bætti hann við.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗