Ferlinum lokið og næsta verkefni klárt

Aron Jóhannsson er hættur.

Aron Jóhannsson hefur tilkynnt að knattspyrnuferlinum sé formlega lokið. Hann tekur nú við nýju hlutverki sem umboðsmaður hjá CAA Stellar.

Þar mun Aron starfa með Bjarka Gunnlaugssyni og Magnúsi Agnari Magnússyni. Hann segir á samfélagsmiðlum að reynslan úr atvinnumennskunni muni nýtast við að aðstoða aðra leikmenn.

Aron lék síðast með Val gegn Breiðabliki í Bestu deildinni síðasta haust. Hann hóf ferilinn hjá Fjölni en hélt utan árið 2010 þegar hann samdi við danska félagið AGF.

Frá Danmörku fór Aron til AZ Alkmaar í Hollandi þar sem góð frammistaða hans varð til þess að Werder Bremen keypti hann árið 2015. Meiðsli settu svip sinn á dvöl hans í Þýskalandi.

Hann lék síðar með Hammarby í Svíþjóð og Lech Poznan í Póllandi áður en hann sneri aftur til Íslands og gekk til liðs við Val.

Aron hafði leikið með yngri landsliðum Íslands þegar hann ákvað árið 2013 að velja bandaríska A-landsliðið. Hann fæddist í Bandaríkjunum og lék 19 landsleiki fyrir þjóðina, skoraði fjögur mörk og fór á HM í Brasilíu árið 2014.

Eftir öll þessi ár í fótboltanum er kominn tími til að leggja skóna formlega á hilluna. Þeir hafa reyndar hangið þar í smá tíma nú þegar.

Eftir að hafa setið hinum megin við borðið í öll þessi ár hlakka ég til að nýta reynslu mína, þekkingu og tengsl til að hjálpa öðrum leikmönnum að ná markmiðum sínum.

Takk allir sem hafa verið hluti af þessari vegferð,“ skrifaði hann m.a. á Instagram.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅