Umfangsmikið innbrot í kerfi fataverslana

Fjöldi norskra fata- og tískuverslana notar afgreiðslukerfið Front Systems sem brotist var inn í aðfaranótt föstudags. Ljósmynd/Front Systems AS

Upplýsingar um starfsfólk og viðskiptavini nokkurra fataverslanakeðja í Noregi gætu hafa komist í rangar hendur eftir umfangsmikið netinnbrot í afgreiðslukerfið Front Systems aðfaranótt föstudags, 6. nóvember, en það er samnefnt fyrirtæki, Front Systems AS, sem rekur kerfið.

Frá þessu greina norskir fjölmiðlar nú í morgunsárið og segir ríkisútvarpið NRK að óþekktir aðilar eigi að hafa haft aðgang að kerfunum í fjórar klukkustundir og eftir því sem EG, móðurfyrirtæki Front Systems AS, greinir frá í fréttatilkynningu náð í 0,2 prósent af gagnagrunninum.

Enn fremur greinir EG frá því að þar sé nú unnið að rannsókn á því hvers kyns gögnum hafi verið stolið, en öruggt sé að greiðslukortaupplýsingar hafi ekki ratað í rangar hendur.

Taki aðeins við áþreifanlegum gjafakortum

Hefur viðskiptavinum Front Systems, en þar á meðal er til dæmis tískukeðjan Floyd, verið gerð grein fyrir stöðu mála bréflega og kemur þar fram að upplýsingar um starfsfólk og starfsmannahald, sem og um gjafakort og inneignarnótur, gætu hafa lekið út.

Upplýsingar um viðskiptavini úr netverslunum keðjanna gætu einnig hafa komist í hendur þeirra sem að innbrotinu stóðu og eru verslanir hvattar til að taka aðeins við áþreifanlegum gjafakortum og inneignarnótum.

Veikleikanum kippt í liðinn

„Vegna eðlis árásarinnar gerum við ráð fyrir að taka muni tíma að kortleggja umfang þeirra gagna sem urðu fyrir barðinu á henni að fullu,“ segir enn fremur í bréfinu og eru verslanir beðnar að meta það sjálfar hvort þær kjósi að upplýsa viðskiptavini sína um innbrotið.

Samkvæmt EG hefur öryggisveikleika í kerfinu nú verið kippt í liðinn auk þess sem innbrotið hefur verið kært til lögreglu.

NRK hafði samband við fjölmiðlafulltrúa EG í morgun sem vísaði til fréttatilkynningarinnar og sagði fyrirtækið fyrst og fremst mundu leggja áherslu á að fylgja málinu eftir gagnvart viðskiptavinum sínum.

NRK

TV2

Nidaros.no

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅