Hjálmar, Kristín Eva og Jói Fel gerðu sér glaðan dag
Starfsfólk, viðskiptavinir og samstarfsaðilar Vistró komu saman á kokteilbarnum Daisy á föstudagskvöld og fögnuðu nýju nafni stóreldhússviðs Danól.
Fyrr um daginn hafði Vistró verið kynnt á Stóreldhússýningunni í Laugardalshöll. Þar gafst gestum kostur á að kynna sér vörur og þjónustu og spjalla við starfsfólkið.
Stóreldhússvið Danól hefur fengið bæði nýtt nafn og nýja ásýnd. Nafnið Vistró er dregið af orðinu vistir og veitingahugtakinu bistró, að því er Hafsteinn Snæland, sölu- og markaðsstjóri, sagði í nýlegu viðtali við Morgunblaðið.
Samhliða breytingunum hefur starfsemin flust í stærra húsnæði að Köllunarklettsvegi 6 í Reykjavík. Þar hefur verið komið upp eldhúsi og viðburðasal til að taka á móti viðskiptavinum.
Hér má sjá svipmyndir frá sýningunni og fögnuðinum á Daisy.
Hannes Snæland sölu og markaðsstjóri Vistró ásamt Maríu Jónu framkvæmdastjóra Danól. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

























