Margt bendir til félagaskipta í janúar eftir erfiða dvöl í London

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 09:30

Jamie Gittens Getty Images

Chelsea íhugar að lána Jamie Gittens frá félaginu í janúar, en Roma hefur áhuga á enska kantmanninum.

Football Insider segir frá, en Gittens hefur átt erfitt uppdráttar frá komu sinni til Chelsea frá Dortmund í fyrra á tæpar 50 milljónir punda. Meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn.

Roma reyndi að fá Gittens síðasta sumar og gæti gert aðra tilraun í janúar. 

Chelsea vill ekki selja kappann þar sem það hefur trú á honum til framtíðar félagið ku vera opið fyrir því að lána hann til að koma honum af stað.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅