Viðræður við Pochettino langt komnar

Muricio Pochettino nálgast Manchester United.

Muricio Pochettino nálgast Manchester United. AFP/Omar Vega

Viðræður Manchester United við Mauricio Pochettino og fulltrúa hans eru langt komnar, að sögn Davids Ornstein hjá The Athletic.

Unnið er að smáatriðum í samningi hans en United hefur enn ekki haft beint samband við bandaríska knattspyrnusambandið, aðeins umboðsmenn argentínska stjórans.

Pochettino er klár í að taka við United af Michael Carrick en United hefur enn ekki vikið Carrick frá störfum.

Bandaríska sambandið ætlar ekki að standa í vegi fyrir brottför hans en United þarf að greiða því tíu milljónir dollara til að ráða þann argentínska.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅