Einstaklega góð kaup á degi einhleypra
Singles’ Day, eða dagur einhleypra, er haldinn 11. nóvember og þótt nafnið vísi til einhleypra geta allir nýtt daginn til að gleðja sig eða aðra. Ljósmynd/Unsplash
Það þarf ekki alltaf sérstakt tilefni til að gera vel við sig en góð tilboð geta verið kærkomin hvatning. Singles Day, eða dagur einhleypra, er haldinn 11. nóvember og þótt nafnið vísi til einhleypra geta allir nýtt daginn til að gleðja sig eða aðra. Hvort sem eitthvað ákveðið hefur lengi verið á óskalistanum eða hugurinn stendur til að byrja á jólagjöfunum getur verið gaman að kynna sér úrvalið og sjá hvað er í boði.
Góð kaup felast þó fyrst og fremst í því að finna eitthvað sem kemur að gagni og veitir ánægju. Það borgar sig því að velta fyrir sér hvað vantar, hvað hefur lengi verið á óskalistanum og hverjum væri gaman að gleðja.
Hér höfum við tekið saman fjölbreytt tilboð í tilefni dags einhleypra. Kannski leynist þar jólagjöfin fyrir einhvern nákominn, eitthvað nytsamlegt fyrir heimilið eða einfaldlega lítil gjöf handa manni sjálfum.
Sérsniðin skyrta hjá Suitup
Vinsælasta gjöfin hjá Suitup Reykjavík er gjafabréf fyrir sérsniðinni skyrtu. Í boði eru yfir 200 efni.
Handhafi gjafabréfsins bókar svo tíma í mælingu hjá Suitup Reykjavík þar sem hann velur efni í skyrtuna og öll smáatriði eins og hnappa, kraga og fleira. Skyrtan er svo sérsniðin á hann, nákvæmlega eins og hún á að vera.
Glæsileg gæðahandklæði
Vorhús er íslenskt hönnunarhús sem fagnar 20 ára afmæli á næsta ári.
Einiberjahönnunin, sem er eftir Eydísi Ólafsdóttur, sækir innblástur í gamla íslenska hefð þar sem einirinn – okkar eina upprunalega, innlenda barrtré – spilaði lykilhlutverk í jólaskreytingum fyrri ára.
Hönnunarlínan einkennist af djúpum rauðum lit ásamt hvítum og silfruðum tónum sem saman skapa einstaklega hlýja og hátíðlega stemningu.
Nýjasta viðbótin í ár er fallegt baðhandklæði úr 100% hágæða bómull.
Curvy.is og Stout.is býður upp á 20% afslátt af öllum vörum bæði í verslun og netverslun í dag. Ljósmynd/Aðsend
Ofurtilboð í Curvy & Stout
Curvy.is og Stout.is býður upp á 20% afslátt af öllum vörum bæði í verslun og netverslun í dag. Auk þess verður ofurtilboð á outlet-útsöluvörum í netverslun eða 3 fyrir 2 – þú færð ódýrustu outlet-útsöluvöruna frítt með!
Curvy & Stout er sérverslun sem býður upp á fallegan og vandaðan „plus size“-fatnað fyrir dömur í stærðum 42–60 og í „big & tall“-stærðum frá XL-8XL fyrir herra.
Verslunin er nýflutt í Mörkina 1 þar sem þú finnur glæsilegt úrval af bæði yfirhöfnum – sparifatnaði – buxum – toppum – náttfötum og undirfötum í fjöbreyttum stærðum.
Verið velkomin til okkar í verslun Curvy & Stout í Mörkinni 1 og við aðstoðum þig við að finna jólagjöfina eða einfaldlega það sem þú ert að leita að.
Meiri gleði í hreyfingu
Nýttu daginn og fáðu góða gjöf á betra verði. Hvort sem það er gjöf fyrir þig eða einhvern sem þú elskar. Hin fullkomna gjöf gleður ekki bara heldur bætir líka líðan, styður við góða heilsu og hjálpar fólki að finna meiri gleði í hreyfingu og daglegu lífi.
Okkar vörur gera einmitt þetta og henta öllum, óháð aldri.
Fullkomna jólagjöfin fyrir hana: Yfirhöfn frá Marc O’Polo
Ertu að leita að jólagjöf sem bæði gleður og yljar á köldum vetrarkvöldum? Vönduð yfirhöfn frá Marc O’Polo er ómótstæðileg gjöf fyrir konuna í þínu lífi. Marc O'Polo er þekkt fyrir tímalausa skandinavíska hönnun, frábært úrval og fyrsta flokks náttúruleg gæðaefni sem endast ár eftir ár.
Gefðu hlýju í jólagjöf í ár! Hvort sem valin er glæsileg ullarkápa, léttur dúnjakki, leðurjakki eða hlý vetrarúlpa þá er jólagjöfin hennar mjúk, hlý og einstaklega stílhrein.
Nú er rétti tíminn til að klára jólainnkaupin í rólegheitum: Á Singles Day færðu 22% afslátt af öllum yfirhöfnum.
Gerðu vel við hana um jólin og tryggðu þér flík sem hún mun elska. Úrvalið er fáanlegt í verslun okkar Marc O’Polo í Kringlunni og á netinu á www.illo.is/marcopolo.
Aðventudagatalið er skemmtileg leið til að telja niður til jóla en í því leynast fjórar óvæntar fótboltatreyjur, ein fyrir hvern sunnudag aðventunnar. Ljósmynd/Aðsend
Happatreyju aðventudagatöl
Það er 20% afsláttur af Happatreyju aðventudagatölum á Singles Day!
Happatreyjur fagna Singles Day með 20% afslætti af vinsælu Happatreyju aðventudagatölunum, sem eru tilvalin fyrir alla fótboltaáhugamenn.
Aðventudagatalið er skemmtileg leið til að telja niður til jóla en í því leynast fjórar óvæntar fótboltatreyjur, ein fyrir hvern sunnudag aðventunnar. Treyjan getur verið frá hvaða félagsliði eða landsliði sem er og frá hvaða tímabili sem er.
Á Singles Day lækkar verðið á aðventudagatölunum í 23.990 kr. fyrir barnastærðir og 27.992 kr. fyrir fullorðinsstærðir.
Það eru ekki bara aðventudagatölin sem lækka í verði heldur einnig af öllum hefðbundnum Happatreyjum og Happatreyjum úr ensku deildunum
Tilboðin gilda á Singles Day, 11. nóvember, í netverslun Happatreyja á happatreyjur.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





