Kári sendir Daníel tóninn: „Húsbóndahollusta er aðdáunarverð upp að ákveðnu marki “
Kári Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fer hörðum orðum um Daníel Guðbjartsson, forstjóra fyrirtækisins, vegna ágreinings um þátt íslenskra vísindamanna í þróun nýs offitulyfs.
Kári segir Daníel ganga of langt í að verja fyrirtækið og varar við því að rangar fullyrðingar um vísindauppgötvanir geti grafið undan trúverðugleika þess.
Þetta kemur fram í grein sem Kári birti á Vísi í gærkvöldi. Þar beinir hann orðum sínum sérstaklega að Daníel, sem hann segist bera mikla virðingu fyrir sem vísindamanni.
„Þú tókst ríkan þátt í að gera svo margar uppgötvanir í erfðafræði sem starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) að það er með ólíkindum að þú skulir reyna að verja það þegar verið er að gera okkur upp uppgötvanir sem við eigum ekkert í,“ skrifar Kári.
ÍE hafnaði gagnrýninni
Tilefni skrifanna er umfjöllun Bloomberg um offitulyfið MariTide, sem bandaríska lyfjafyrirtækið Amgen er að þróa. Þar var fjallað um þátt erfðarannsókna Íslenskrar erfðagreiningar í þróun lyfsins. Amgen keypti Íslenska erfðagreiningu árið 2012.
Kári gagnrýndi umfjöllunina harðlega í viðtali við RÚV á mánudag og sagði rangt að þróun lyfsins hefði hafist með uppgötvun sem gerð var á Íslandi.
„Við gerðum enga slíka uppgötvun. Við höfðum ekkert með byrjun á þessu prógrammi að gera,“ sagði Kári í Morgunútvarpi Rásar 2.
Íslensk erfðagreining hafnaði gagnrýninni síðar sama dag. Í yfirlýsingu fyrirtækisins kom fram að hvorki hefði verið farið með ósannindi né staðreyndir rangfærðar um framlag vísindamanna þess.
Samkvæmt yfirlýsingunni voru vísindamenn fyrirtækisins hluti af alþjóðlegum rannsóknarhópi sem birti vísindagrein árið 2010 þar sem sýnt var fram á tengsl GIPR-próteinsins við líkamsþyngd manna. Niðurstöður erfðarannsókna hefðu jafnframt styrkt vísindalegar forsendur þróunar MariTide.
Íslensk erfðagreining benti einnig á að hvergi væri því haldið fram í umfjöllun Bloomberg að vísindamenn fyrirtækisins hefðu fyrstir komið fram með kenningar um tengsl GIPR við líkamsþyngd.
Kári segir hins vegar að grundvallarskilaboð Bloomberg-greinarinnar séu þau að Íslensk erfðagreining hafi staðið að upphafi þróunar MariTide, sem hann segir einfaldlega rangt.
„Hér áður fyrr hefði það aldrei liðist“
Kári segir í nýju greininni að þáttur Íslenskrar erfðagreiningar hafi falist í því að staðfesta síðar að Amgen hefði að öllum líkindum valið rétta leið við þróun lyfsins.
Hann bendir jafnframt á að rannsóknin frá árinu 2010 hafi að hans mati ekki leitt til uppgötvunar á tengslum GIPR við líkamsþyngd, heldur staðfest niðurstöður eldri rannsókna.
„Hér áður fyrr hefði það aldrei liðist að vísindamenn við Sturlugötu 8 stærðu sig af uppgötvunum annarra þótt þeir hafi lagt örlítið til málanna,“ skrifar hann.
Kári segist bera mikla ábyrgð á því að saga fyrirtækisins sé rétt skráð, enda hafi hann stofnað það og veitt því forystu fram til 1. maí í fyrra.
Hann lýkur greininni með beinum skilaboðum til Daníels.
„Það breytir því ekki að húsbóndahollusta er aðdáunarverð upp að ákveðnu marki, umfram það fer hún að trufla menn og þeir hætta að halda haus.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗