Ákvörðun Ronaldos kostar sambandið milljarða
Cristiano Ronaldo hefur lagt landsliðsskóna á hilluna og missir portúgalska landsliðið verðmætasta einstaklinginn í markaðsstarfi sínu fyrir vikið.
Daniel Sá, forstöðumaður portúgölsku markaðsstjórnunarstofnunarinnar í Porto, sagði að treyjusala og eftirspurn á alþjóðavettvangi væru sérstaklega viðkvæm.
Stofnun hans mat CR7-vörumerkið á 850 milljónir evra árið 2025, jafnvirði um 116,5 milljarða íslenskra króna.
Sá hvatti Portúgal til að byggja aðdráttarafl sitt á liðinu í heild frekar en að leita að beinum arftaka: „Ekki leita að næsta Ronaldo.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗