Andlát: Borgþór Vestfjörð Kjærnested
Borgþór Vestfjörð Kjærnested fæddist í Sandgerði 3. september 1943. Hann lést 29. október 2026, 83 ára að aldri.
Foreldrar hans voru Svavar F. Kjærnested garðyrkjumeistari, f. 9. febrúar 1920, d. 25. desember 2011, og Hjálmfríður Ólöf Þorsteinsdóttir, garðyrkjufræðingur og forstöðukona, f. 15. janúar 1916, d. 20. desember 2003. Þau stofnuðu garðyrkjubýlið Ása í Stafholtstungum í Mýrasýslu, þar sem Borgþór ólst upp til ársins 1958, er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Alsystur hans eru Ragnheiður Kjærnested, f. 1947, og Erna Kjærnested, f. 1950. Hálfsystkini hans samfeðra eru Erling, Þórhildur, Sigrún Alda og Kolbrún.
Borgþór stundaði nám við Skógaskóla og Austurbæjarskóla og síðar við lýðháskóla í Borgå í Finnlandi árin 1961-1962. Hann bjó og starfaði um árabil í Finnlandi og Svíþjóð, lauk námi í dagskrárgerð og túlkun og starfaði meðal annars við finnska útvarpið. Hann fluttist aftur til Íslands árið 1975 og starfaði við fréttamennsku, dagskrárgerð, túlkun, þýðingar og ferðaþjónustu. Hann var fréttaritari finnska útvarpsins á Íslandi 1975-1984, framkvæmdastjóri Sambands norrænu félaganna í Helsingfors 1984-1988 og Norræna flutningamannasambandsins í Stokkhólmi 1990-1996. Síðar starfaði hann hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur og var framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara.
Borgþór var einnig rithöfundur og þýðandi. Meðal verka hans er Milli steins og sleggju – Saga Finnlands, sem kom út árið 2017. Hann lét samfélagsmál og réttindabaráttu til sín taka og var félagi í Frímúrarareglunni.
Borgþór kvæntist fyrst Vivian Ann-Mari Sandelin. Börn þeirra voru Magnús Roland, sem lést árið 2015, og Ann-Marie Erna Elísabet. Síðari eiginkona hans var Sólveig Pétursdóttir. Börn þeirra eru Sólveig Fríða og Pétur Friðfinnur. Þau skildu. Hrafnhildur Schram var sambýliskona hans til fjölda ára. Borgþór á sex barnabörn: Ásdísi Sólveigu, Þórdísi Kötlu, Alex, Gústav Þór, Sigdísi Önnu og Eu Líf.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗