Leyndarmálið á bak við lögbannskröfuna: Þetta vildi David Walliams ekki að kæmi fram
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 08:55
David Walliams. Mynd/Getty
Breski grínistinn og barnabókahöfundurinn David Walliams, sem er meðal annars þekktur fyrir þættina Little Britain og dómarastörf í Britain's Got Talent, stendur frammi fyrir alvarlegum ásökunum um kynferðislega áreitni og meint kynferðisbrot gegn ungum konum og unglingsstúlkum.
Samkvæmt umfjöllun Daily Mail er Walliams, sem er 55 ára, meðal annars sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn 15 ára stúlku og notfært sér frægð sína til að koma á nánum tengslum við aðrar ungar stúlkur. Walliams hafnar ásökununum alfarið.
Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi, ekki síst vegna þess að Walliams reyndi að fá lögbann á birtingu rannsóknar The Guardian og ITV News á ásökununum. Dómstóll hafnaði þeirri kröfu og birtust fréttir um málið í gær.
Í málarekstrinum var honum aðeins lýst sem „þekktum einstaklingi“ og vakti það miklar vangaveltur í Bretlandi um hver ætti í hlut.
Dómstóll hafnaði hins vegar kröfu hans í síðustu viku og birtu The Guardian og ITV News í kjölfarið umfjöllun sína.
„Ég var aðeins 15 ára“
Ein kvennanna, sem gengur undir nafninu Jade, segist hafa verið 15 ára árið 2007 þegar Walliams hafði samband við hana í gegnum samskiptavefinn MySpace.
Hún heldur því fram að hann hafi síðar boðið henni heim til sín í Lundúnum og þar farið að henni með kynferðislegum hætti gegn vilja hennar.
Samkvæmt frásögn konunnar hafi Walliams lyft upp bol hennar og sleikt á henni brjóstið áður en hann reyndi að færa hönd hennar niður í buxurnar sínar. Hún segist þá hafa dregið sig undan og sagt nei.
„Ég var aðeins 15 ára. Þetta er kynferðisbrot. Þetta er algjörlega rangt á allan mögulegan hátt,“ segir konan samkvæmt Daily Mail.
Lögmenn Walliams hafna frásögninni alfarið og segja að hann hafi aldrei átt í kynferðislegum samskiptum við konuna.
Önnur kona, sem nefnd er Alex, segist hafa kynnst Walliams þegar hún var 15 ára. Hann hafi í kjölfarið hjálpað henni við skrif og boðist til að aðstoða hana við að komast að í sjónvarpsbransanum.
Þau hafi síðar átt í kynferðislegu sambandi þegar hún var 17 ára. Konan telur nú að Walliams hafi markvisst byggt upp traust hennar í kynferðislegum tilgangi. Lögmenn hans segja að hann hafi talið hana vera 18 ára þegar sambandið átti sér stað.
Lögreglan hvetur konur til að stíga fram
Lögreglan í Lundúnum hefur brugðist við umfjölluninni og hvatt þá sem telja sig hafa orðið fyrir brotum til að tilkynna þau.
Samkvæmt Daily Mail hafði lögreglunni ekki borist nein formleg kæra vegna meintra kynferðisbrota í tengslum við málið þegar hún sendi frá sér yfirlýsingu.
Grínistinn Lucy Beaumont hefur einnig stigið fram og segist hafa komið upplýsingum á framfæri við fjölmiðlana. Hún heldur því fram að ung kona hafi undirritað trúnaðarsamning sem bannaði henni að ræða reynslu sína, jafnvel við fjölskyldu og sálfræðing.
Walliams hefur viðurkennt að hafa stundum sýnt hugsunarleysi í hegðun sinni en hafnar því að vera „kynferðislegt rándýr“.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗