Beint: Fjallað um málefni innflytjenda
Morgunverðarfundur innflytjendaráðs, Lykill að samfélaginu, fer fram í dag. Á fundinum verður fjallað um málefni sem snerta marga innflytjendur, svo sem íslenskunám, inngildingu og samfélagsfræðslu.
Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, mun setja fundinn.
Dagskránni lýkur með því að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík og hægt er að fylgjast með honum í beinu streymi. Útsendingin hefst kl. 8:40 og stendur til 11.
Beint streymi frá fundinum:
Dagskráin:
Setning
Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs
New in Iceland – aðgengileg og hagnýt samfélagsfræðsla fyrir innflytjendur
Árni Sveinsson, verkefnastjóri Vinnumálastofnunar í JL-húsinu, kynnir nýtt námsefni í samfélagsfræðslu sem ætlað er öllum innflytjendum á Íslandi.
Námsefnið er einfalt og hagnýtt og því er ætlað að styðja fólk í að fóta sig í daglegu lífi á Íslandi og auðvelda þátttöku þess í samfélaginu, hvort sem það snýr að vinnumarkaði, menntun, heilbrigðisþjónustu, skólamálum eða samskiptum við opinberar stofnanir.
Íslenskuspor – tengsl í gegnum tungumál
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kynnir niðurstöður verkefnis sem unnið var í samstarfi við Reykjanesbæ og hlaut styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála árið 2025.
Spjallað um orðræðu kærleikans
Fanny Sanne Sissoko og Martyna Karolina Daniel frá Borgarbókasafni kynna niðurstöður úr verkefnum Borgarbókasafns í þágu innflytjenda og ræða hlutverk bókasafna í inngildingu.
Afhending styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2026
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗