United að ganga frá smáatriðum með Pochettino
Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 08:38
Mauricio Pochettino. GettyImages
Manchester United er langt komið með að semja við Mauricio Pochettino, verði ákveðið að láta Michael Carrick fara.
David Ornstein hjá The Athletic greinir frá þessu en félagið er að ganga frá smáatriðum í hugsanlegum samningi með Pochettino og hans fulltrúum.
United hefur þó ekki tekið endanlega ákvörðun um framtíð Carrick og ekki enn haft samband við bandaríska knattspyrnusambandið.
Pochettino stýrir bandaríska landsliðinu en sambandið mun líklega ekki koma í veg fyrir að hann taki við á Old Trafford.
Gengi United hefur verið hörmulegt á leiktíðinni og fór liðið í fallsæti inn í landsleikjahléið. Carrick er því í sjóðheitu sæti.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗