Bláa lónið til umræðu á CNN

Í þættinum sagði Sigríður Margrét útboðið vera tímamót.

Í þættinum sagði Sigríður Margrét útboðið vera tímamót. Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins hf., var viðmælandi í viðskiptaþættinum Quest Means Business í gær, á fyrsta degi almenns hlutafjárútboðs fyrirtækisins.

Í þættinum sagði Sigríður Margrét útboðið vera tímamót þar sem verið væri að skrá eitt af undrum veraldar á hlutabréfamarkað hér á landi.

Kvað hún tímann vera réttan nú fyrir fyrirtækið til að taka stefnuna á markað. Félagið hugsaði til langs tíma og sýn þess á verðmætasköpun næsta áratugar væri skýr, hvort tveggja fyrir fyrirtækið og Ísland sem áfangastað.

Bláa lónið við Svartsengi. Fyrsti dagur hlutafjárútboðs fyrirtækisins Bláa Lónsins hf. var í gær. Morgunblaðið/Eggert

Fjárfestum boðið með í vegferðina

„Með skráningunni bjóðum við fjárfestum að taka þátt í vegferð Bláa lónsins. Fjármagnið verður nýtt til að styðja við vöxt félagsins og fram undan eru mjög metnaðarfull uppbyggingarverkefni,“ sagði Sigríður Margrét í þættinum.

Þáttastjórnandinn Richard Quest hafði orð á því hve sterkt vörumerki Bláa lónið væri fyrir Ísland. Sigríður Margrét tók undir, en benti jafnframt á að starfsemi félagsins næði langt út fyrir hið þekkta baðlón. Félagið starfaði á sviði heilsu og vellíðunar um land allt og velgengni þess væri nátengd velgengni íslenskrar ferðaþjónustu.

„Við viljum skipa Íslandi í hóp fremstu áfangastaða heims á sviði heilsu og vellíðunar. Við höfum margt upp á að bjóða; jarðhitann, stórbrotna náttúru, hreint loft og vatn ásamt öryggi og góðum lífskjörum,“ sagði Sigríður Margrét í Quest Means Business.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅