Birti þessa mynd úr rúminu og fólk hefur áhyggjur

433

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 08:30

Emma Jones. Mynd/Instagram

Emma Louise Jones, vinsæl íþróttafréttakona hjá BBC, hefur vakið áhyggjur meðal aðdáenda sinna eftir að hafa birt mynd af sér á sjúkrahúsi.

Jones birti myndina á Instagram þar sem hún liggur í sjúkrarúmi og setur þumalinn upp. Við myndina skrifaði hún að þetta væri ekki hennar „uppáhaldstegund af hóteli“.

Ekki er vitað hvers vegna Jones er á sjúkrahúsi en hún hefur áður rætt opinberlega um heilsufarsvandamál sín.

Árið 2024 greindi hún frá því að hún hefði glímt við veikindi um nokkurt skeið og eytt meiri tíma á sjúkrahúsi en heima hjá sér. Hún ákvað þá að taka sér hlé frá störfum til að einbeita sér að heilsunni.

Nokkrum vikum síðar sagði Jones að hún hefði gengist undir aðgerð og væri á sterkum lyfjum, en að líðanin hefði batnað töluvert.

Jones hafði nýlega snúið aftur til Bretlands eftir að hafa starfað við umfjöllun um Breeders' Cup-kappreiðarnar í Bandaríkjunum þegar hún birti myndina af sjúkrahúsinu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅