Þakklát Dagný leggur skóna á hilluna
Dagný Brynjarsdóttir hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna, 35 ára gömul. Hún greindi frá ákvörðuninni í færslu á Instagram þar sem hún þakkaði fyrir ferilinn og sagðist vilja verja meiri tíma með fjölskyldunni.
Dagný lék 122 landsleiki fyrir Ísland og skoraði 38 mörk. Hún var um árabil í lykilhlutverki hjá landsliðinu og lék með því á fjórum Evrópumótum.
Hún ólst upp á Hellu og hóf ferilinn hjá KFR áður en hún gekk til liðs við Val árið 2007. Með Hlíðarendaliðinu varð hún fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari.
Árið 2011 hélt Dagný í háskólanám til Bandaríkjanna. Hún varð bandarískur háskólameistari með Florida State árið 2014 og hafnaði sama ár í öðru sæti í kjörinu um MAC Hermann verðlaunin, sem veitt eru besta háskólaleikmanni landsins.
Dagný lék einnig með Selfossi og Bayern München áður en hún samdi við Portland Thorns. Þar varð hún bæði deildarmeistari og sigurvegari úrslitakeppni bandarísku atvinnumannadeildarinnar.
Æskudraumur rættist þegar hún gekk til liðs við West Ham árið 2021. Hún hafði haldið með félaginu frá barnsaldri og varð síðar fyrirliði þess.
Dagný sneri aftur til Selfoss eftir að dvölinni hjá West Ham lauk á síðasta ári og lék þrjá leiki með liðinu í sumar. Nú tekur við nýr kafli hjá henni eftir langan og farsælan feril.
Yfirlýsing Dagnýjar á Instagram:
„Kæri fótbolti. Fyrsta ástin mín og þvílík vegferð sem þetta hefur verið.
Frá 850 manna bæ í að búa í borgum með milljón manns. Nógu hugrökk til að dreyma stórt. Eftir 29 ár af keppnisfótbolta, þar á meðal 21 ár á hæsta stigi, er tími til kominn að kalla þetta gott.
Ég elska leikinn enn og mun alltaf gera það, en núna er ég ekki lengur reiðubúinn að gefa allt sem ég á. Hungrið, metnaðurinn og drifkrafturinn að stórfengleikanum eru komin með nýjan tilgang. Ég vil vera til staðar fyrir syni mína í gegnum öll skrefin og hjálpa þeim að eltast við drauma sína, hverjir sem þeir gætu svo sem verið.
Ég hóf ferilinn ásamt strákunum og bestu vinum mínum heima hjá KFR og kláraði hann með félaginu sem ég studdi í gegnum alla mína barnsæsku er eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Frá KFR, Val, Selfossi, Florida State, Bayern München, Portland Thorns og West Ham, öll félög sem spiluðu mikilvæga rullu á vegferð minni og hjálpuðu til við að móta manneskjuna sem ég er í dag.
Ísland. Yfir 100 landsleikir og átján ár að klæðast landsliðstreyjunni. Það hafa verið ótrúleg forréttindi og eitthvað sem ég er mjög svo stolt af. Að standa á vellinum á leikvöngum um allan heim og syngja þjóðsönginn með allri þjóðinni til að styðja við bakið á mér er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma.
Ég er svo þakklát fyrir öll tækifærin, áskoranirnar, lærdóminn, titlana, bikarana, vinátturnar og ógleymanlegu augnablikin. Ég er jafn þakklát öllum sem ég hitti á leiðinni, liðsfélögum, þjálfara, starfsliðinu, andstæðingum, stuðningsmönnum og vinum. Takk öll fyrir að gera þessa vegferð sérstaka.
Ég er sérstaklega þakklát eiginmanni mínum, sonum, foreldrum, fjölskyldu og vinum. Þökk sé ykkur gat ég elt drauma mína og lifað þá. Takk fyrir að vera til staðar í gegnum alla vegferðina.
Ég yfirgef leikinn fyllt af stolti og þakklæti, með allan þennan lærdóm og minningar sem ég tek með mér inn í næsta kafla lífsins. Ég hlakka til að eyða meiri tíma með fjölskyldunni og vinunum þar sem ég mun taka fagnandi á móti því sem kemur næst. Ég loka þessum kafla með fullt hjarta og opna næsta með spennu fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér. Meiri tími með fjölskyldunni, meiri fótbolti að sjálfsögðu og vonandi mörg ný ævintýri. Takk fyrir allt, fótbolti.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗