Aron Jó leggur skóna á hilluna og greinir frá því sem tekur við
Aron Jóhannsson hefur formlega lagt knattspyrnuskóna á hilluna. Hann greinir frá þessu á samfélagsmiðlum en Aron lék síðasta leik sinn síðasta haust, með Val gegn Breiðabliki í Bestu deildinni.
„Eftir öll þessi ár í fótboltanum er kominn tími til að leggja skóna formlega á hilluna. Þeir hafa reyndar hangið þar í smá tíma nú þegar,“ skrifar Aron.
Aron hefur jafnframt tekið til starfa sem umboðsmaður hjá CAA Stellar þar sem hann mun vinna með Bjarka Gunnlaugssyni og Magnúsi Agnari Magnússyni.
„Eftir að hafa setið hinum megin við borðið í öll þessi ár hlakka ég til að nýta reynslu mína, þekkingu og tengsl til að hjálpa öðrum leikmönnum að ná markmiðum sínum,“ segir hann.
Aron hóf ferilinn hjá Fjölni áður en hann hélt til Danmerkur og gekk í raðir AGF árið 2010. Þaðan lá leiðin til AZ Alkmaar í Hollandi þar sem hann sló í gegn og vakti áhuga stærri félaga.
Árið 2015 gekk hann í raðir Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni en meiðsli settu töluvert strik í reikninginn á þeim tíma. Síðar lék hann með Hammarby í Svíþjóð og Lech Poznan í Póllandi áður en hann sneri heim og samdi við Val, þar sem hann lék síðustu ár ferilsins.
Aron vakti mikla athygli árið 2013 þegar hann ákvað að leika með bandaríska landsliðinu fremur en því íslenska. Hann hafði áður leikið með yngri landsliðum Íslands en fæddist í Bandaríkjunum og hafði því val um hvort landið hann vildi spila fyrir.
Hann lék 19 landsleiki fyrir Bandaríkin, skoraði fjögur mörk og var í landsliðshópnum sem fór á HM í Brasilíu árið 2014.
Aron segist líta til baka á ferilinn stoltur og þakklátur. Hann sé ekki síður spenntur fyrir þeim kafla sem framundan er.
„Takk allir sem hafa verið hluti af þessari vegferð.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗