Eigum ótrúlega mikið inni sem félag

Guðjón Pétur Lýðsson, til vinstri, er aðalþjálfari Hauka og er nú einnig orðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar. Óskar Örn Hauksson, til hægri, er aðstoðarþjálfari liðsins samhliða því að vera yfirmaður knattspyrnumála. Ljósmynd/Haukar

Guðjón Pétur Lýðsson aðalþjálfari karlaliðs Hauka í fótbolta tók við enn stærra hlutverki hjá félaginu í haust þegar hann var ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar félagsins.

Samhliða því var Óskar Örn Hauksson sem er aðstoðarþjálfari Guðjóns ráðinn yfirmaður knattspyrnumála.

Guðjón segir ráðninguna vera ákveðna viðurkenningu á þeirri vinnu sem hann hefur lagt í félagið. Hann sé jafnframt spenntur fyrir því að taka þátt í að móta framtíð knattspyrnustarfsins.

„Þetta er kannski aðeins öðruvísi en í flestum félögum. Báðir foreldrar mínir eru Haukafólk og móðir mín stofnaði til að mynda kvennadeild félagsins í fótbolta og pabbi spilaði og þjálfaði í félaginu þannig að ég held að margir í Haukum hafi vitað nákvæmlega fyrir hvað ég stend og hvernig ég vil gera hlutina,“ sagði Guðjón Pétur og bætti við:

„Haukar eru félag sem á ótrúlega mikið inni. Félagið hefur byggt upp flotta aðstöðu. Til dæmis erum við komin með frábært knatthús sem nýtist okkur mjög vel.

Það sem hefur kannski vantað er að taka næsta skref innan frá og byggja upp knattspyrnustarfið sjálft og gera það faglegra. Starfið hefur verið of mikið í höndum foreldra og sjálfboðaliða, sem er ekki sanngjarnt gagnvart þeim.“

Á von á sterkri deild

Guðjón býst við að 1. deildin verði sterk á næsta tímabili en Haukar ætli sér að mæta af krafti til leiks. Fyrsta markmiðið sé þó að festa liðið í sessi í deildinni.

„Við erum með framsækið lið, spilum fótbolta sem er gaman að horfa á og skorum mörg mörk. Við ætlum að reyna að halda því áfram þótt deildin sé töluvert sterkari en sú sem við komum úr.“

Hann nefnir að styrkja þurfi bakland félagsins enn frekar og halda áfram að byggja upp innviði. Áhersla verði áfram lögð á uppalda leikmenn en jafnframt verði leitað að leikmönnum sem geti styrkt hópinn.

„Við viljum byggja þetta sterkt á heimastrákum en fá jafnframt inn góða leikmenn sem geta styrkt okkur og miðlað reynslu sinni til yngri leikmanna. Við viljum byggja upp félag þar sem það myndast ekki risaskörð þótt einn eða tveir leikmenn fari,“ sagði hann.

Ítarlegt viðtal við Guðjón Pétur má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins föstudaginn 6. nóvember eða með því að smella hér.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅