52 ára og sjaldan litið betur út
Robbie Williams sýndi stælt vaxtarlag sitt á Instagram. Söngvarinn er nú á tónleikaferð um Ástralíu. Skjáskot/Instagram
Breski söngvarinn Robbie Williams vakti athygli þegar hann birti mynd af sér berum að ofan á Instagram í tengslum við tónleika sína í Ástralíu.
Williams, sem er 52 ára, sýndi stælt vaxtarlag sitt baksviðs og kvaðst spenntur að vera kominn aftur til landsins.
Framkoma söngvarans á Melbourne Cup-veðreiðunum vakti þó ekki síður athygli. Þar flutti hann meðal annars stórsmellina Feel, Rock DJ og Angels, en sviðstilburðir hans féllu misjafnlega í kramið.
Ekki allir á sama máli
Sumum áhorfendum þótti Williams ganga of langt þegar hann meðal annars hélt hljóðnemanum við klofið á sér og þóttist leika á gítar. Gagnrýndu þeir framkomuna á samfélagsmiðlum og töldu hana óviðeigandi.
Aðrir tóku upp hanskann fyrir söngvarann og sögðu hann einfaldlega skemmta sér. Margir lofuðu sýninguna og kölluðu eftir því að hann kæmi oftar fram á stórum íþróttaviðburðum í Ástralíu.
Williams kom bæði fram fyrir veðreiðarnar og hélt yfir 75 mínútna tónleika að þeim loknum. Hann hélt síðar tónleika fyrir fullu húsi á Adelaide Oval-leikvanginum og heldur nú áfram tónleikaferð sinni um Ástralíu og Nýja-Sjáland.
Robbie Williams kom fram fyrir Melbourne Cup-veðreiðarnar í Ástralíu. Sviðsframkoma söngvarans vakti misjöfn viðbrögð. AFP/William West
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/8/1690897.jpg)
