Segir umræðuna „í skötulíki og eiginlega út í hött“
Grímur Sæmundsen gagnrýnir hugmyndir um að Bláa lónið taki þátt í kostnaði við varnargarðana í Svartsengi. Samsett mynd: mbl.is/Eggert
Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður Bláa lónsins, telur umræðu um að fyrirtækið taki þátt í kostnaði við varnargarðana í Svartsengi vera „í skötulíki og eiginlega út í hött“.
Þetta sagði Grímur í samtali við mbl.is að loknum kynningarfundi vegna hlutafjárútboðs félagsins í Hörpu í gærmorgun.
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hófst klukkan 10 í gær og stendur til föstudagsins 13. nóvember. Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland 20. nóvember.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Grímur Sæmundsen, stofnandi félagsins og stjórnarformaður segja félagið vel undirbúið fyrir frekari jarðhræringar. Ljósmynd/Cindy Rún Li
Í nóvember í fyrra greindi fjármála- og efnahagsráðuneytið frá því að til skoðunar væri hvort fyrirtæki sem notið hefðu góðs af varnaraðgerðum á Reykjanesskaga ættu að bera hluta kostnaðarins. Bláa lónið var meðal þeirra fyrirtækja sem sérstaklega voru nefnd.
Grímur segir varnargarðana hafa verið reista að frumkvæði stjórnvalda, fyrst og fremst til að verja orkuinnviði sem þjóna um 30 þúsund manna byggð.
Að hans sögn réðst lega garðanna af landfræðilegum aðstæðum en ekki starfsemi Bláa lónsins. Félagið hafi ekki komið að því máli.
„Það var aldrei um það rætt af stjórnvöldum á þeim tíma að þau fyrirtæki sem lentu innan varnargarða ættu að taka þátt í kostnaði við þau,“ segir Grímur.
Hann spyr hvort þá eigi ekki sömu sjónarmið að gilda um fyrirtæki í Grindavík sem hafi notið góðs af varnargörðum og fyrirtæki annars staðar á landinu sem hafi notið góðs af ofanflóðavörnum.
„Þannig að í mínum huga er þessi umræða bara öll í skötulíki og eiginlega út í hött,“ segir Grímur.
Hann vísar einnig til sérstaks gjalds sem lagt hefur verið á húseignir vegna varnaraðgerðanna.
Samkvæmt lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga er um að ræða forvarnagjald sem nemur 0,08 prómillum af brunabótamati húseigna. Gjaldið er innheimt með vátryggingaiðgjöldum og tekjurnar renna í ríkissjóð.
Varnir fjármagnaðar með ólíkum hætti
Varnir gegn náttúruvá einskorðast ekki við Reykjanesskaga. Víða um land hefur verið ráðist í snjóflóðavarnir og sjóvarnir til að vernda byggð, mannvirki og atvinnustarfsemi.
Fjármögnun slíkra framkvæmda er þó með mismunandi hætti. Snjóflóðavarnir eru meðal annars fjármagnaðar úr Ofanflóðasjóði.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar greiðir ríkissjóður allt að sjö áttundu hluta kostnaðar við sjóvarnir, en sveitarfélög og landeigendur sem njóta þeirra greiða að minnsta kosti einn áttunda.
Í úttekt Ríkisendurskoðunar á varnargörðunum á Reykjanesskaga, sem birt var í apríl, var bent á að fjármögnun varna gegn náttúruvá þyrfti að leysa með heildstæðri nálgun og skýrum fjárheimildum.
Ríkið kannaði kostnaðarþátttöku fyrirtækja
Í tengslum við athugun ráðuneytisins í nóvember í fyrra óskaði ráðherra eftir dómkvaðningu matsmanna til að meta kostnað ríkissjóðs vegna varnaraðgerða á Reykjanesskaga og þau verðmæti sem aðgerðirnar hefðu bjargað.
Þá hafði ekki verið tekin ákvörðun um að höfða mál gegn fyrirtækjunum.
Í febrúar síðastliðnum var beiðnin um dómkvaðningu hins vegar afturkölluð. Náttúruhamfaratrygging Íslands hafði þá boðist til að afla sérfræðiálits um gagnsemi varnargarðanna og hvaða hagsmunum hefði verið bjargað með gerð þeirra.
Ráðuneytið sagði að staðan yrði metin að nýju þegar álitið lægi fyrir.
Segir varnargarðana hafa sannað gildi sitt
Grímur leggur jafnframt ríka áherslu á mikilvægi varnargarðanna og segir þá hafa skipt sköpum við að verja mannvirki í Svartsengi.
„Varnargarðarnir hafa þegar sannað gildi sitt,“ segir hann.
Hann telur að án þeirra hefði hraun runnið yfir orkuverið í Svartsengi í eldgosinu í nóvember 2024 og hugsanlega einnig Bláa lónið.
Spurður hvort félagið hafi orðið vart við áhyggjur af eldvirkninni og áhættunni sem henni fylgir í tengslum við hlutafjárútboðið segir Grímur:
„Ég hef ekki á tilfinningunni að fólk hafi áhyggjur af þessu í dag.“
Hann segir mikilvægt að greina á milli hættumats Veðurstofunnar og áhættumats sem tekur mið af þeim varnaraðgerðum sem þegar hefur verið gripið til.
Að sögn Gríms tekur hættumat Veðurstofunnar ekki tillit til varnargarðanna en áhættumatið gerir það.
Vöktun hluti af daglegum rekstri
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, segir allar fasteignir félagsins tryggðar. Félagið sé hins vegar ekki með tryggingu sem bæti rekstrarstöðvun vegna náttúruhamfara.
Hún segir vöktun og viðbrögð við jarðhræringum nú vera hluta af daglegum rekstri félagsins. Það hafi eigið mælikerfi og öryggisdeild og áhættumat sé uppfært í kjölfar hvers atburðar.
Sigríður vísar til ítarlegs áhættukafla í útgefandalýsingu félagsins og hvetur þá sem hyggjast fjárfesta til að kynna sér hann vel.
Eldvirknin hluti af aðdráttaraflinu
Grímur segir félagið hafa unnið að því að dreifa áhættu í rekstrinum, meðal annars með uppbyggingu nýrra áfangastaða og kaupum á Arctic Adventures. Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaupin og gert er ráð fyrir að þeim ljúki fyrir lok nóvember.
Sigríður segir eldvirknina einnig hafa sínar jákvæðu hliðar. Án hennar væri ekki aðgangur að heita vatninu sem starfsemi Bláa lónsins byggist á.
„Það væri ekkert Blátt lón,“ segir hún.
Grímur rifjar upp eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 og telur það hafa verið eina af meginástæðum ferðamannabylgjunnar sem fylgdi á næstu árum.
„Hluti af aðdráttarafli Íslands er eldvirkni,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
