Er arftaka Alisson á Anfield að finna í ensku úrvalsdeildinni?

Liverpool hefur áhuga á Bart Verbruggen, markverði Brighton, og sér hann sem mögulegan arftaka Alisson Becker.

Samkvæmt Teamtalk fylgist Liverpool með þessum 24 ára gamla Hollendingi, ekki síst vegna óvissu um framtíð Alisson. Samningur hans rennur út næsta sumar.

Verbruggen, sem hefur heillað marga með frammistöðu sinni í ensku úrvalsdeildinni, hefur einnig verið orðaður við Chelsea, Manchester United og Real Madrid.

Verbruggen ku vera ánægður hjá Brighton, en samningur hans rennur út eftir næstu leiktíð. Hann fer líklega ekki í janúar en næsta sumar gæti orðið vendipunktur á hans ferli.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅