Vilhjálmur höfðar mál gegn Björgólfi og Birgi: Fer fram á yfir 100 milljónir í bætur
Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður, hefur höfðað miskabótamál gegn fjárfestunum Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni vegna njósna sem hann sætti árið 2012. Vilhjálmur krefst þess að þeir greiði honum samtals 132 milljónir króna í miskabætur, auk vaxta og málskostnaðar.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag en fyrirtaka í málinu er fyrirhuguð í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi. Áður hafði verið greint frá málshöfðuninni í apríl síðastliðnum.
Málið á rætur að rekja til þess að einkarannsóknarfyrirtækið PPP fylgdist með Vilhjálmi og fleiri einstaklingum árið 2012. Njósnirnar tengdust hópmálsókn gegn Björgólfi Thor í kjölfar falls Landsbankans.
Í sjónvarpsþættinum Kveik í apríl 2025 var fjallað um starfsemi PPP og umfang eftirlitsins, en meðal þeirra sem komu að aðgerðunum var starfandi lögreglumaður.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Vilhjálmur byggi mál sitt á því að Björgólfur Thor og Birgir Már hafi staðið að „ólögmætri og saknæmri meingerð gegn friði, einkalífi og persónu hans“ með því að láta framkvæma skipulagðar og leynilegar aðgerðir gegn honum.
Hann segir að aðgerðirnar hafi valdið „alvarlegri röskun á friði, friðhelgi og einkalífi“ sínu og krefst 66 milljóna króna í miskabætur frá hvorum stefnda um sig.
Í frétt Morgunblaðsins er vísað í greinargerð lögmanns Björgólfs Thors og Birgis Más þar sem því er ekki mótmælt að Björgólfur hafi óskað eftir athugun á Vilhjálmi árið 2012 og að Birgir Már hafi haft milligöngu um samskipti við PPP. Þeir hafna hins vegar því að sýnt hafi verið fram á þær afleiðingar sem Vilhjálmur telur sig hafa orðið fyrir.
Í greinargerðinni er Vilhjálmur sjálfur sakaður um að hafa tekið þátt í stuldi á trúnaðargögnum og rógsherferð gegn Björgólfi Thor, að undirlagi Róberts Wessmans. Þá er því jafnframt haldið fram að hann hafi tekið þátt í blekkingum til að fá fólk til þátttöku í hópmálsókn gegn Björgólfi.
Björgólfur hafi viljað afhjúpa meintar blekkingar og talið sig hafa rétt til þess samkvæmt stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.
Áður hefur verið sagt frá því að Björgólfur telji að njósnir PPP hafi gengið mun lengra en hann óskaði eftir og að hann hafi ekki greitt fyrirtækinu jafn háar fjárhæðir og haldið hafi verið fram.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗